156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

jafnlaunavottun.

303. mál
[17:47]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég kem af fjöllum. Ég kem hér upp í ræðustól og lýsi því yfir að ég hef hlustað á gagnrýnina, utanumhaldið um jafnlaunavottunina er of þungt, ég ætla að létta á því. Ég er sammála því að jafnlaunavottunin hefur reynst of dýr. Ég ætla að breyta því. Ég sé ekki betur en að ég sé að mæta gagnrýninni, það verði stærri og færri aðilar sem gangist undir jafnlaunavottun og það verði sjaldnar gert. Breytir ekki því að ég stend með aðgerðum til að varðveita og standa með launajafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Flest ríki í kringum okkur gera kröfu um einhver slík kerfi. Fulltrúi Miðflokksins kom hér hörundsár alveg frá því í morgun vegna umræðu um sögu þeirra af stuðningi við hagræðingaraðgerðir. Þar er ég einfaldlega að vísa í söguna, allt síðasta kjörtímabil t.d. Ég minnist orða Bjarna Benediktssonar hér í þingsal þar sem hann hélt þessu vel til haga. Miðflokkurinn í reynd styður ekki hagræðingartillögur. Það eru gögn sem sýna þetta. Við getum litið á atkvæðagreiðslur og framgöngu þeirra í þingsal. Miðflokkurinn styður í reynd ekki hagræðingaraðgerðir. Þetta veit allur þingsalurinn og ég leyfði mér að benda á það. (NMG: Geturðu nefnt dæmi?) Allar hagræðingartillögur.