Neyðarlínan og dýr í neyð.
Virðulegi forseti. Atvinnuvegaráðherra hefur óskað eftir því við dómsmálaráðherra að kanna möguleikann á því að Neyðarlínan taki við tilkynningum frá almenningi í gegnum 112 þegar fólk verður vart við dýr í neyð og að það sé Neyðarlínan sem vinni úr umræddum tilkynningum og komi boðum til eftirlitsaðila, svo sem Matvælastofnunar eða MAST. En hvernig gengur þessi vinna og hverjar eru líkurnar á að þessi hugmynd geti raungerst og hversu fljótt? Hvaða atriði eru það sem þarf að tryggja til að af þessu geti orðið, t.d. hvað varðar þjálfun 112, fjármagn, tíma og fleira?
Á þessari stundu vitum við auðvitað ekki neitt um hversu mörg dýr búa við óviðunandi aðstæður en það er mikilvægt að þetta takist enda þarf að bregðast hratt við. Borist hafa sláandi fregnir og myndir af dýraníði og gera má því skóna að slíkt viðgangist meira en menn grunar. Í það minnsta þurfa að vera afleiðingar, tilhlýðileg refsing og tilboð um betrun, meðferð til handa þeim sem eiga dýr sem eiga velferð sína alfarið undir eigendum eða þeim sem sinna þeim. Það verður að finnast leið til að allir þeir sem hafa hinn minnsta grun eða vísbendingu eða verða vitni að dýraníði geti umsvifalaust komið upplýsingum til eftirlitsaðila. Spurning er hvort sú skylda ætti ekki að vera bundin í lög, á sama hátt og tilkynning til barnaverndar ef talið er að barn búi við óæskilegar aðstæður, að tilkynna það til yfirvalda sé talið að dýr búi við aðstæður þar sem því er ekki sinnt sem skyldi. Sú leið þarf þá að vera greið. Fyrsta skrefið er auðvitað að tryggja að dýrið sé öruggt og að meint ofbeldi sé stöðvað.
Matvælastofnun gegnir nú eftirlitshlutverki dýraverndar. Það eftirlit má styrkja með skýrari heimildum til aðgerða. Nú er staðan þannig að ávallt á að grípa til vægustu aðgerða af hálfu eftirlits. Ef það er ekki gert vofir umtalsverð sekt yfir eftirlitsaðila sem gerandi nýtur góðs af. Með breyttu verklagi má flýta og styrkja eftirlitsaðila og svo er það einnig afleitt að refsing gerenda felist í því að fórnarlambið, dýrið hans, er oftast tekið af lífi eftir misþyrmingar eða slæman aðbúnað af hálfu eiganda. Þetta er kallað, með leyfi forseta, „að lina þjáningar dýrsins“ en í mörgum málum þarf gerandinn ekki að svara frekar fyrir gjörðir sínar.
Ég spyr: Hefur ráðherra kannað hvort Neyðarlínan geti tekið við tilkynningum frá almenningi um dýr í neyð og komið viðeigandi boðum til lögregluyfirvalda? Og ef svo er, hvenær gæti það verklag hafist og hvernig hyggst ráðherra þá tryggja fjármagn til verkefnisins og þjálfunar starfsfólks Neyðarlínunnar?
Seinni spurningin er: Telur ráðherra að tilkynningarskylda þeirra sem verða varir við dýraníð eða aðra ótilhlýðilega meðferð eða aðbúnað dýra ætti að vera bundin í lög?