Neyðarlínan og dýr í neyð.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Þetta er auðvitað mál sem okkur ætti að vera annt um, að tryggja velferð dýra og sér í lagi dýra í neyð. Samkvæmt úrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta fer atvinnuvegaráðuneytið með málefni sem varða velferð dýra. Ég heyri að atvinnuvegaráðuneytið leitar nú leiða til að bæta viðbrögð kerfisins í dýravelferðarmálum og hefur óskað eftir því við mitt ráðuneyti, dómsmálaráðuneytið, að kanna möguleika þess að Neyðarlínan taki við tilkynningum um dýr í neyð og vinni úr þeim með það að markmiði að auðvelda aðgengi að aðstoð fyrir þau dýr. Yrði þetta reyndin gæti það komið í hlut neyðarvarða Neyðarlínunnar að koma boðum áleiðis til viðkomandi aðila eða veita leiðbeiningar um eðlileg skref í þeim sporum, t.d. að leita til Matvælastofnunar eftir því hvort um er að ræða neyðartilvik eða ekki. Þessi þáttur máls er til skoðunar í dómsmálaráðuneytinu og samtal um þetta við Neyðarlínuna er í gangi. En eftir því sem mér skilst hefur Neyðarlínan þá þegar átt í samskiptum við fulltrúa Matvælastofnunar og Fjarskiptamiðstöðvar ríkislögreglustjóra um að kortleggja þessa stöðu og leggja í kjölfarið mat á næstu skref. Þannig að engin ákvörðun liggur fyrir um þetta og engin ákvörðun verður tekin fyrr en tillögur þessara aðila liggja fyrir af því að það eru flækjustig í þessu.
Varðandi tilkynningarskyldu þeirra sem verða varir við dýraníð eða aðra ótilhlýðilega meðferð dýra þá er auðvitað nú þegar mælt fyrir um það í lögum um velferð dýra að það sé hjálparskylda annars vegar og tilkynningarskylda hins vegar gagnvart dýrum. Það er annar lagabálkur sem er á forræði atvinnuvegaráðherra. Ég fagna umræðunni um velferð dýra og tel það vera mikilvæga umræðu. En að mínu mati er rétt að beina frekari fyrirspurnum varðandi þetta mál til atvinnuvegaráðherra, eins og ég nefndi, sem er samkvæmt forsetaúrskurði með þennan málaflokk. Ég nefni það þó að einhver samtöl hafa farið fram innan kerfisins um það hvort og þá hvernig væri hægt að auðvelda almenningi að koma upplýsingum um dýraníð og vonda meðferð dýra á framfæri til þar til bærra aðila.