Neyðarlínan og dýr í neyð.
Herra forseti. Nú á að fara að leggja í kostnað, greiningar og þjálfun starfsmanna, við að taka við símtölum um dýr í neyð. Köttur uppi í tré, tilkynning til Neyðarlínunnar, útkall lögreglu líklega eða einhverra annarra. Hvert erum við komin? Gæludýr eða önnur dýr, ég er alls ekki að gera lítið úr illri meðferð á dýrum en þetta er að mínu viti á borði Matvælastofnunar MAST og eftirlitsaðila þar undir atvinnuvegaráðuneytinu. Ég veit ekki alveg hvernig þetta á að vera undir Neyðarlínunni; að hrúga sífellt fleiri atriðum þar inn. Hvað varðar búskap í sveitum landsins þá er eftirlit með því nú þegar. Kannski á hv. fyrirspyrjandi við einhvers konar gæludýr í stórborginni sem gegnir kannski öðru máli um. En ég verð bara að gera smáathugasemd við þetta. Það er ekki hægt að fara endalaust í einhvern aukinn kostnað í kerfinu til að greina og þjálfa og setja (Forseti hringir.) sífellt fleiri atriði undir þær stofnanir sem fyrir eru í samfélaginu.