156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

Neyðarlínan og dýr í neyð.

135. mál
[17:57]
Horfa

Elín Íris Fanndal (Flf):

Virðulegi forseti. Ég fagna þessari fyrirspurn til hæstv. ráðherra. Viðhorf fólks til dýrahalds og velferðar dýra hafa mikið breyst á undanförnum árum og við verðum að fylgja þeirri atburðarás eftir. Fólk lendir ítrekað í vandræðum með að leita upplýsinga um hjálp varðandi dýr í neyð. Allt sem einfaldar og flýtir því ferli er því afar jákvætt. Að mínu mati flokkast köttur uppi í tré ekki undir dýr í neyð því að það eru yfirleitt allar hendur á lofti við að bjarga þeim og það er jafnvel fréttaefni.