156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

Neyðarlínan og dýr í neyð.

135. mál
[17:58]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Mig langaði bara til að spyrja aðeins varðandi þessa umræðu: Eru einhver dæmi um að það hafi verið vandamál að lögreglan eða Neyðarlínan taki við upplýsingum um dýraníð? Og þegar ég segi dýraníð í þessu sambandi velti ég því fyrir mér: Þurfum við þá ekki að skilgreina það betur hvað átt er við þegar við erum að tala um þetta? Nú vitum við að blóðmerahald og ill meðferð á hryssum í því sambandi hefur verið til umræðu og það þarf náttúrlega sérfræðinga til að meta það. Ég hugsa að lögreglumenn almennt séu ekki færir um að meta hvort ill meðferð á hryssum sé til staðar við blóðmerahald. Ég held að við þyrftum að meta það og ég legg það hér inn í þessa umræðu, hvort við þurfum ekki að meta það hvað dýraníð er og síðan hvort það sé yfirleitt vandamál að lögreglan taki við þessum upplýsingum og reyni að gera eitthvað í þeim.