156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

Neyðarlínan og dýr í neyð.

135. mál
[17:59]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir hennar svör og að sjálfsögðu öðrum þeim sem hafa tekið þátt í umræðunni. Flokkur fólksins hefur verið sá flokkur sem hefur einna mest barist fyrir vernd og velferð dýra. Tími er kominn til, að okkar mati, að dýr þessa lands fái betra eftirlit af hálfu hins opinbera. Velferð dýra þarf að gera hærra undir höfði. Fregnir af dýraníði, sem okkur hafa borist í nokkrum mæli nú síðustu misseri, eru áfall; að raunverulega skuli vera til einstaklingar sem eru tilbúnir að níðast á dýrum, varnarlausum skepnum, sem eiga alla sína tilveru undir mannfólkinu. Þær raddir hafa verið uppi að betra sé að aðskilja dýravernd frá Matvælastofnun eða styrkja verulega þann hluta sem snýr að dýravernd, eftirliti og velferð dýra hjá Matvælastofnun. MAST þarf vissulega að fylgja stjórnsýslulögum og grípa til vægasta úrræðisins og getur síðan gripið til sektar í alvarlegustu málunum. En þetta tvennt hefur án efa lítið að segja í sumum tilvikum til að fá gerendur til að breyta betur gagnvart dýrum sem um ræðir.

Því má jafnvel spyrja: Færi betur á því að stjórnsýsla dýravelferðar sé alfarið óháð? Það er kannski það sem mig langar að ljúka þessu með hér, að beina því til hæstv. dómsmálaráðherra hvort tilefni sé til að skoða það með vandlegum hætti.