Neyðarlínan og dýr í neyð.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni og þingmönnum fyrir umræðuna og tek undir það með hv. 10. þm. Reykv. n., Grími Grímssyni, að mér virðist ekki augljóst hvort þetta hafi í reynd verið vandamál. Ég er einlæglega sammála því að við ættum hér eins og annars staðar alltaf að vera vakandi fyrir velferð dýra og við vitum það auðvitað að það eru sannarlega dæmi um dýraníð í okkar samfélagi. Ég vildi nefna það í lokin, sem ég kom inn á hér áðan, að við erum auðvitað með lög frá Alþingi um velferð dýra þar sem ákveðin grunnviðmið eru þegar lögð og að Matvælastofnun eða MAST er sá aðili sem fer með þetta og að frekari samtöl í þessa veruna heyri eðli máls samkvæmt undir atvinnuvegaráðherra. En mér finnst gott að við höfum rætt þetta stuttlega hér í dag og tel mig skynja það í samfélaginu að það sé blessunarlega aukin áhersla og vitund almennings um mikilvægi þess að við séum líka talsmenn þess að vel sé farið með dýrin okkar.