156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

skipulögð glæpastarfsemi.

355. mál
[18:03]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M):

Forseti. Fyrirspurn mín hljóðar svona: Hvernig hyggst ráðherra bregðast við aukningu á skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi?

Ástæða þess að ég legg þessa fyrirspurn fram er sú að við lifum á tímum þar sem á örfáum árum hefur orðið gríðarlega mikil breyting þegar kemur að öryggi Íslendinga. Við sjáum nú stöðuga aukningu í ofbeldisglæpum samhliða auknum straumi innflytjenda og sérstaklega þeim hópum sem tengjast skipulögðum hópum. Við sjáum hvernig þessi þróun smýgur inn í hverfin okkar, skólasamfélög og stofnanir. Fréttir af ofbeldi, hnífsstungum og fíkniefnainnflutningi eru orðnar reglulegar. Ég er ekki að segja að hér fremji ekki Íslendingar glæpi en í þeim tilfellum þar sem ekki er um Íslendinga að ræða hafa þar til bær stjórnvöld þær upplýsingar sem þau þurfa, hvaðan þessir einstaklingar koma og hvaða bakgrunn þeir hafa? Í flestum nágrannalöndum okkar er þessara upplýsinga aflað, gögnin tekin saman og birt. Það eru gögn eftir þjóðerni, aldri og til að mynda fyrra ríkisfangi. Þetta eru ekki gögn sem eru birt til að ala á ótta eða fordómum heldur til að verja samfélagið og byggja upp réttláta og raunhæfa stefnu í löggæslu og innflytjendamálum. Þegar íslenskir fjölmiðlar flytja fréttir af glæpum er yfirleitt tilgreint hvort um sé að ræða erlenda ríkisborgara eða íslenska. Sama á við þegar birtar eru upplýsingar um hlutfall fanga. Í báðum tilfellum má sjá hversu hátt hlutfall eru einstaklingar með erlent ríkisfang. Einnig má sjá aukningu í glæpum Íslendinga. Margir hafa eðlilega furðað sig á aukningu í glæpatíðni Íslendinga. Er þetta ný kynslóð? Nei, þetta eru villandi gögn. Það á ekki að vera feimni við að ræða hvort þeir sem fremja glæpi hafa haft annað ríkisfang áður. Við þurfum að vita hver raunveruleikinn er til að bregðast við honum. Við þurfum að vita hvort brotaferillinn hafi verið til staðar áður, hvort hann hafi verið þekktur hjá yfirvöldum í öðrum löndum og hvernig við getum í framtíðinni komið í veg fyrir að slíkt fólk fái að festa rætur í samfélagi okkar. Ef maður sækir t.d. um vegabréfsáritun til Bretlands þarf að tilgreina núverandi og fyrra ríkisfang. Þetta snýst ekki um rasisma. Þetta snýst ekki um að stimpla heilu þjóðernin, þetta snýst um að koma í veg fyrir að við blindumst af pólitískri rétthugsun og lokum augunum fyrir staðreyndum. Við eigum ekki að bíða þar til það er orðið of seint. Við eigum ekki að þegja þar til óöryggið hefur fest sig í sessi og ákveðin hverfi, skólar og ungmenni eru orðin útsett fyrir áhrifum glæpagengja sem hafa ekkert með íslenskan veruleika eða menningu að gera.

Ég vil alveg sérstaklega taka það fram hér í dag, út af fyrri orðaskiptum mínum við ráðherra, að ég styð ráðherra heils hugar til allra góðra verka í þessu máli.