156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

skipulögð glæpastarfsemi.

355. mál
[18:11]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Já, ég átta mig auðvitað á því, og við, að skipulögð glæpastarfsemi hefur vaxið lögregluyfirvöldum víða á Norðurlöndum yfir höfuð. Við erum, held ég, ekki enn á sömu slóðum og til að mynda Svíþjóð þannig að við verðum auðvitað að vera svolítið tilbúin og viðbúin og reyna að vera svolítið á undan þróuninni til að stemma stigu við þessu. Þannig að ég hvet bara í þessu stutta ávarpi mínu hér hæstv. ráðherra til að taka á þessum málum. Ég hvet hana til að setja upp brottfararbúðir sem allra fyrst til að auðvelda brottflutning þeirra sem eru hér ólöglega í landinu. Ég hvet hana til þess að íhuga það ef ástandið er að versna að taka upp sérstakt landamæraeftirlit á innri landamærunum til að stemma stigu við þessu ef þörf reynist á, eins og oft hefur verið síðustu ár en ekkert verið gert. Ég hvet hana einnig til að koma upp skrifstofu á landamærunum, skrifstofu Útlendingastofnunar eða útibú, til að hægt sé að afgreiða málið hraðar, að þetta gangi svolítið hraðar fyrir sig.