156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

skipulögð glæpastarfsemi.

355. mál
[18:12]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Hæstv. ráðherra vék í erindi sínu að aðgerðum sem þegar væri búið að ýta úr vör og nefndi þar sérstaklega, ég held ég fari rétt með að þetta sé kölluð afturköllun á dvalarleyfi vegna alþjóðlegrar verndar. Ég var nú einn af þeim sem fagnaði þessu mjög þegar ég sá þetta koma fram. En svo fór ég að lesa þetta betur. Þá olli það mér talsverðum vonbrigðum að sjá orðalag þar: „gerist viðkomandi sekur um alvarleg brot“. Ég er ekki lögfræðingur en ég fór að kynna mér hvað það er í lagarammanum sem flokkast þar undir og mér sýnist það nú vera fyrst og fremst kannski morð og alvarlegar líkamsárásir, nauðganir og eitthvað slíkt. En við erum auðvitað með hér skipulagða glæpastarfsemi sem myndi ekki falla undir þetta þrátt fyrir að vera síendurtekið, viðvarandi vandamál. Þá langar mig bara að fá það fram hvort þetta mál muni ná einhverjum tökum á því.