156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

skipulögð glæpastarfsemi.

355. mál
[18:15]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf):

Frú forseti. Ég vil þakka kærlega þessa fyrirspurn og greinargóð svör ráðherrans og tek undir það sem hv. þm. Grímur Grímsson fór yfir hér áðan varðandi þau frumvörp sem eru í vinnslu í allsherjar- og menntamálanefnd. Ég heyri það að við eigum stuðning við þau mál í nefndinni. Það er augljóst að a.m.k. Miðflokkurinn styður þau mál. Mig langar bara til að leggja áherslu á mikilvægi þess sem ráðherra nefndi hérna áðan varðandi heimildir lögreglu til gagnaöflunar vegna skipulagðrar brotastarfsemi, að hún sé í samræmi við það sem lögregluembættin í Norður-Evrópu hafa til að við getum af fullum krafti barist við þennan vágest sem skipulögð glæpastarfsemi er.