skipulögð glæpastarfsemi.
Frú forseti. Ég þakka þingmönnum öllum og sér í lagi Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir þessa umræðu. Við tölum gjarnan um það eðli skipulagðra brota að þau ferðast yfir landamæri. Í því samhengi er sérstaklega mikilvægt að við séum með hugann við alþjóðlegt samstarf. Það skiptir máli að það sé eflt. Það skiptir máli að lögregla sé jafn vel sett og brotamennirnir hvað það varðar að löggæsluyfirvöld hafi burði og getu og heimildir. Ég er áhugamanneskja um það að við horfum á einingar eins og Europol og Eurojust og eflum og virkjum samstarf þar um.
Hér var rætt um brottvísun og frávísun á landamærunum og það er einmitt hugmyndafræðin með því að flytja þessa einingu mögulega frá ríkislögreglustjóra á Suðurnesin að geta flýtt fyrir framkvæmdinni. Við erum eina Schengen-ríkið sem er ekki með brottfararstöð starfandi og eftir því sem mér skilst þá höfum við verið skuldbundin til að gera það síðan 2008. Við erum líka eina landið innan Norðurlandanna sem ekki hefur lagaákvæði um afturköllun verndar í þeim tilvikum þegar menn hafa brotið af sér. Það er í allar þessar aðgerðir og flestar þær aðgerðir sem ég er að vísa hér, annars vegar á Suðurnesjunum, en síðan er svona lagasetning eins og um afturköllun verndar liður í þessari samræmingarstefnu okkar, eða kannski öllu heldur liður í því að víkja frá þeirri stefnu að vera með margar séríslenskar reglur sem eru á skjön við framkvæmd annarra. — Ég hugsa að hálsinn leyfi mér ekki að hafa þetta mikið lengra þannig að ég þakka fyrir umræðuna. Og kannski í lokin, af því að ég var spurð um afturköllun verndar: Við smíði þess frumvarps var litið til fyrirmynda annarra Norðurlandaríkja um inntak og efni.