156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

upplýsingagjöf til almennings um útlendinga sem gerast brotlegir við lög.

24. mál
[18:20]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Karl Gauti Hjaltason) (M):

Frú forseti. Öryggi landsmanna er okkur öllum ávallt hugleikið enda fátt sem skiptir meira máli en að við sem þjóð getum lifað áfram í opnu og öruggu samfélagi. Þar gegnir lögreglan mikilvægasta hlutverkinu ásamt öðrum stofnunum réttarvörslukerfisins. En við þurfum að vita hvaða ógnir steðja að okkur á hverjum tíma. Norðurlöndin mörg hver líða nú fyrir skerandi þögn lögregluyfirvalda í því ástandi sem þar kraumaði undir um langt árabil. Ekki mátti flytja fregnir af stórkostlegri aukningu afbrota erlendra glæpaklíka eða vandamálum tengdum afbrotum sem rekja mátti til innflytjenda. Þögnin, sem nú blessunarlega hefur verið rofin, t.d. í Svíþjóð, varð m.a. til þess að vandamálin uxu yfirvöldum yfir höfuð. Við megum ekki falla í þessa sömu gryfju, frú forseti. Vandamálin hverfa ekki þótt ekki sé talað um þau og ef menn tala einfaldlega af hreinskilni er þó altént möguleiki á því að bregðast við. Er ekki hæstv. ráðherra sammála því hvað þetta varðar? Eða hvar stendur Viðreisn að þessu leytinu?

Við vitum auðvitað að heimurinn er ekki eins einfaldur og hann var fyrir nokkrum áratugum. Tækniátök, fólksflutningar og fleira hafa gert það að verkum að hætturnar eru nýjar og aðrar en við áður þekktum. Við heyrum og sjáum reglulega fréttir af afbrotum þar sem útlendingar eru sagðir brotlegir. Sumar þessara frásagna reynast ósannar meðan aðrar eiga við rök að styðjast. Upplýsingagjöf stjórnvalda í þessum efnum er brotakennd. Er hæstv. ráðherra ekki sammála mér í því að mikilvægt sé að fréttaflutningur af afbrotum sé réttur og einnig að yfirvöld skuli svara fyrirspurnum um þjóðerni brotamanna eða a.m.k. að leiðrétta ef rangt er farið með í fréttum? Það er því eðlilegt að spyrja hæstv. ráðherra hvort ekki sé hægt að greina skýrt frá því hvort útlendingar eða Íslendingar eigi hlut að máli þegar um alvarleg afbrot er að ræða. Með því að efla upplýsingaflæðið má koma í veg fyrir sögusagnir sem oft leiða til falsfrétta og þá andúðar á saklausu fólki. Ég hygg að með því að bæta upplýsingagjöfina þá megi minnka misskilning og misskilda andúð, enda á það ekki að vera leyndarmál gagnvart borgurum landsins hvaðan glæpamennirnir koma.

Því er þessum spurningum varpað fram: Hvernig er upplýsingagjöf stjórnvalda og lögreglu til almennings um útlendinga sem gerast brotlegir við íslensk lög háttað? Er einhver ástæða, hæstv. ráðherra, að fara í feluleik með það?