upplýsingagjöf til almennings um útlendinga sem gerast brotlegir við lög.
Frú forseti. Ég skil spurningu hv. þingmanns sem svo að hann sé að spyrja um upplýsingagjöf stjórnvalda og lögreglu til almennings, en ég heyrði að hann var svo öðrum þræði að fjalla um umfjöllun fjölmiðla. Auðvitað getur þetta tvennt tengst, hvernig stjórnvöld veita upplýsingum til fjölmiðla. En svo höfum við líka meðtekið og orðið vitni að umræðu um það hvert hlutverk fjölmiðla er í þessum efnum. Við athugun ráðuneytisins á verklagi lögreglu vegna þessarar fyrirspurnar hv. þingmanns þá kom fram í svörum frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og ríkislögreglustjóra hins vegar að lögreglan hafi í dag ekki frumkvæði að því að upplýsa sérstaklega um það hvort þeir sem hafa gerst brotlegir við lög séu útlendingar eða íslenskir ríkisborgarar heldur upplýsir um það hvort afbrot hafi verið framið. Eftir því sem mér skilst þá er þetta gert til að tryggja ákveðið hlutleysi í umfjöllun. En svo veit ég líka að verklagið hefur verið þannig hjá lögreglu um landið allt og hjá ákæruvaldinu sömuleiðis að vera með almennar verklagsreglur um samskipti við fjölmiðla í þeim tilgangi vitaskuld að vernda rannsóknarhagsmuni málanna, vernda með því hagsmuni brotaþola sem þeir eiga í málunum og hagsmuni samfélagsins af því að umfjöllun og upplýsingagjöf grafi ekki undan árangri eða líkum lögreglu á því að ná fram þeim upplýsingum sem á þarf að halda við rannsókn máls. Það sé ekki verið að upplýsa um meira en það sem þarf sem geti mögulega skaðað rannsókn. Þessar reglur fjalla, eftir því sem mér skilst, ekki um tilkynningar til almennings vegna útlendinga sem brotið hafa lög hér á landi en það má finna undantekningar á því að það sé greint frá því að um útlending sé að ræða. Við þekkjum t.d. orðalag í tilkynningum þegar talað er um „af erlendu bergi brotinn“, og þá er ekki verið að vísa til þjóðernis. Ég gef mér að það séu þá annars vegar þessi sjónarmið um að ýta ekki undir ákveðnar hugmyndir en vitaskuld ekki síður að raska ekki hagsmunum rannsóknarinnar eða þegar kannski er um tengsl er að ræða. Við þekkjum þetta t.d. í samhengi við það hvort birta eigi nafn geranda, t.d. í dómum. Þar erum við með reglu af hálfu dómstólanna líka um að vernda persónuhagi brotaþolans sem ekki hefur endilega áhuga á því að upplýsingar um hann eða hana séu aðgengilegar. Þannig að þetta á helst við þegar það liggur kannski í hlutarins eðli að um erlendan ríkisborgara sé að ræða, ég nefndi sem dæmi rannsókn brots á útlendingalögum þar sem viðkomandi hefur ekki dvalarleyfi. En eins og ég segi, það sem ég sé hér er að það er ekki verið að flagga því sérstaklega hvort um Íslending er að ræða eða útlending.
Stutta svarið við þessari spurningu hv. þingmanns held ég að sé í aðalatriðum þetta: Upplýsingagjöf til almennings varðandi einstaklinga sem gerst hafa brotlegir við íslensk lög er almennt þannig að það er verið að greina frá brotinu sem slíku, hvort það var karl eða kona sem það framdi eða er grunur um að hafi framið, fremur en að það sé verið að horfa mjög til þess hvort um Íslending eða útlending er að ræða. Eins og alltaf er þá er þetta auðvitað atvikum háð. Stundum þarf að nefna þetta, stundum er það alger óþarfi. Stundum getur það haft í för með sér hættu fyrir rannsóknarhagsmuni þannig að ég held að það sé engin regla við þessar aðstæður sem getur verið þannig að það sé einhver 100% framkvæmd á því. Ég held að við þurfum líka að velta því fyrir okkur í hvaða tilgangi við viljum fá fram þessar upplýsingar.