upplýsingagjöf til almennings um útlendinga sem gerast brotlegir við lög.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Hún er mjög áhugaverð og sá sem hér stendur hefur oft verið í þeirri stöðu í sínu fyrra starfi að svara einmitt þessum fyrirspurnum og vera í aðstöðu til þess, þ.e. fengið þessar upplýsingar. Þetta er bara mjög erfitt. Við megum passa okkur á því að jaðarsetja ekki fólk. Og eins og hæstv. dómsmálaráðherra kom inn á hér áðan þá varðar þetta líka rannsóknina. Oft er það þannig með rannsóknir, sérstaklega á skipulagðri brotastarfsemi, að það er verið að óska eftir upplýsingum frá almenningi um brotið og við megum passa okkur á því að það fari ekki þann farveg að það sé bara verið að horfa til þess að einhverjir útlendingar hafi framið þau, bara svo það sé sagt. Hins vegar eru þetta auðvitað upplýsingar fyrir almenning um það hvers lenskir viðkomandi brotamenn eru og þá er það bara spurningin í mínum huga hvenær þetta þarf að koma fram. Þarf þetta að koma fram strax á rannsóknarstigi eða er nóg að það komi kannski bara fram þegar og ef ákæra er gefin út?