upplýsingagjöf til almennings um útlendinga sem gerast brotlegir við lög.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Mig langar eiginlega bara að koma fyrst inn á það sem hv. þm. Grímur Grímsson sagði: Hvenær þarf þetta að kom fram? Ég held nefnilega að þetta sé lykilspurning. Við þurfum ekki að fá upplýsingar í hverju máli um af hvaða þjóðerni fólk er, það skiptir okkur kannski ekki máli. En það skiptir máli að þessi gögn séu til, að þetta geti komið fram eftir árið hver staðan er vegna þess að ég held að þessi upplýsta umræða þurfi að eiga sér stað og að þessi gögn þurfi að liggja fyrir til að við bregðumst við með ákveðnum hætti þegar við tökum á málefnum til framtíðar.
Mig langar að koma aðeins inn á þetta varðandi Bretana af því að þeir eru núna búnir að loka — við þurfum nú að sækja um ETA til að komast þangað og, eins og ég sagði áðan, við þurfum að segja hvert okkar fyrra ríkisfang er, ef við höfum haft fyrra ríkisfang. Ég held að það sé svolítið mikilvægt í umfjöllun fjölmiðla að það sé bara sagt hvort það voru Íslendingar eða erlendir og voru þau með fyrra ríkisfang. Það fer ekki niður á einstaka mál en ég held að almenningur eigi rétt á að vita að það er breytt veröld með auknum innflytjendastraumi.