156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

upplýsingagjöf til almennings um útlendinga sem gerast brotlegir við lög.

24. mál
[18:31]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Karl Gauti Hjaltason) (M):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og líka þeim hv. þingmönnum sem hafa tekið til máls í þessari umræðu. Ég tel þetta mjög mikilvægt mál. Ég er þess fullviss að það séu hagsmunir allra að vera ekki að fela hvaðan þeir koma sem fremja hér glæpi. Það má líka benda á það í tilefni af orðum hv. þm. Víðis Reynissonar að það verður auðvitað líka að leiðrétta ýmiss konar rangan fréttaflutning sem er stundum í gangi eftir afbrot. Hvað eigum við að ganga langt í því að leiðrétta rangan fréttaflutning þar sem fullyrt er hvaðan einhverjir afbrotamenn komi sem er hugsanlega rangt? Þetta er líka stór spurning um það. Það er líka spurning um það hvort verið sé að tala um fréttir af einhverju afbroti sem er nýbúið að gerast, kannski daginn eftir, eða hvort það sé verið að vinna einhverjar tölfræðiupplýsingar eftir á um þessi sömu mál. Ég tel hvort tveggja mjög mikilvægt; umræðuna og ekki síður að móta stefnu hæstv. ráðherra. Þetta eru mikilvægar upplýsingar og geta haft áhrif á stefnumótun í afbrotavörnum, ekki síður en stefnumótun hvað varðar eftirlit á landamærum. Ég á von á því, virðulegur forseti, að hæstv. ráðherra geri gangskör í því að efla og skýra upplýsingagjöf stjórnvalda og lögreglu í framhaldi af þessari umræðu hér. Ég vona þó að við séum sammála um það, ég og hæstv. ráðherra, að við megum ekki falla í þá gryfju eins og gerist á Norðurlöndunum, að í stað þess að segja frá vandanum þá eigi að fela hann. Við eigum að segja frá vandanum í stað þess að fela hann. Almenningur á Íslandi á kröfu um að hann sé upplýstur, ekki síst öryggisins vegna. Það þarf að fylgjast með þessu, þróuninni í þessum málum. Þarna þurfum við skýra stefnu og ekkert hálfkák. Allt upp á borðið, segi ég. En auðvitað átta ég mig á orðum hv. þm. Víðis Reynissonar, auðvitað átta ég mig á því. Það er enginn að tala um einhverja jaðarsetningu í þessu sambandi, við erum að tala um að það sé eðlileg upplýsingagjöf og þarna þarf að móta ákveðna stefnu, hæstv. ráðherra.