156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

upplýsingagjöf til almennings um útlendinga sem gerast brotlegir við lög.

24. mál
[18:33]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég þakka þingmönnum öllum fyrir þessa umræðu. Það kom fram í máli hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur sú spurning: Eru þessi gögn til? Það eru auðvitað til heilmiklar skráningar í LÖKE-kerfum. Það er til afbrotatölfræði sem er gefin út á ári hverju hjá ríkislögreglustjóra. Það eru til ársskýrslur. Þar eru býsna aðgengilegar upplýsingar en þó alltaf með þeim fyrirvara að við búum í mjög fámennu ríki þannig að öll sjónarmið um persónuvernd, ekki síst af hálfu þeirra, því að við erum t.d. að tala um viðkvæmustu brotin sem eru ofbeldisbrot, sem eru kynferðisbrot, brot sem gjarnan eiga sér stað í því samhengi að það eru tengsl á milli geranda og þolanda. Að ganga mjög langt í lýsingum á geranda er að ganga mjög langt í því að setja þolandann út til umfjöllunar líka. Þar verðum við líka að vera með í huga hversu sterk rödd fjölmiðlanna er í dag með neti og öðru. Það er ekkert augljóst svar við þessu að það eigi bara að dúndra út öllum upplýsingum strax því að það getur haft skelfilegar afleiðingar í för með sér líka. Hættan er beggja vegna borðsins. Ég er sammála því sem hv. þingmaður segir að núna þegar við erum að taka stór skref um að taka mynduglega á skipulagðri brotastarfsemi þá eigum við vitaskuld að tala um hlutina eins og þeir eru, viðurkenna það að skipulögð brotastarfsemi hefur fest rætur á Íslandi eins og annars staðar. Við ætlum ekki að vera meðvirk og við ætlum að læra af reynslu annarra. Það er líka ýmislegt í reynslu annarra, t.d. hvernig fjallað er um svona mál sem við getum lært af, þannig að við förum ekki núna í eitthvert hástig í þeim efnum. Við viljum vandaða, við viljum reglubundna, við viljum yfirvegaða og við viljum raunsanna frásögn lögreglu, ákæruvalds um það hver staðan er í afbrotum á Íslandi. Við viljum að almenningur sé meðvitaður um hverjar hætturnar eru á Íslandi, ætlum sannarlega ekki og ættum ekki að fela neitt þar. En við viljum heldur ekki vera í þeirri stöðu að ýfa upp hræðslu, óttakennd og draga úr öryggistilfinningu almennings þegar þess er kannski ekki þörf. Þannig að eins og ég segi: Það þarf jafnvægi í þessari umræðu eins og allri annarri.