samskipti ríkis og sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir tækifærið að ræða samskipti ríkis og sveitarfélaga en á Íslandi eru tvö stjórnsýslustig, ríki og sveitarfélög. Ástæða fyrirspurnar minnar til ráðherra er sett fram vegna misgóðrar reynslu minnar sem fyrrverandi bæjarstjóra af samskiptum ríkis og sveitarfélaga en það er því miður reynsla margra starfsmanna sveitarfélaga. Mig langar að nefna hér í upphafi til gamans að ein af ástæðum þess að sá sem hér stendur sóttist eftir að vera þingmaður liggur einmitt í því að reyna að bæta þessi samskipti. En það gerir maður ekki einn. Ég set þessa fyrirspurn mína ekki fram í pólitískum tilgangi. Ég er ekki að kenna fyrri ríkisstjórnum um hvernig þessi samskipti hafa þróast. Við sem erum núna í meiri hluta þurfum líka að líta okkur nær. Þetta hefur ekkert með pólitík að gera heldur að mínu mati ákveðna menningu innan stjórnkerfis ríkisins. Þetta er spurning um virðingu í samskiptum milli jafn rétthárra stjórnsýslustiga.
Frú forseti. Mig langar að nefna hérna örfá dæmi um samskipti ríkis og sveitarfélaga þar sem reynt hefur á og ég þekki vel til. Í fyrsta lagi langar mig að nefna fjármálin. Fulltrúum sveitarfélaga líður oft eins og komið sé fram við þá eins og betlara eða óþekka krakka að biðja um meiri pening þegar fulltrúar sveitarfélaga koma til ríkisins til að ræða ófjármögnuð verkefni ríkisins. Ég nefni sem dæmi fjármögnun hjúkrunarheimila eða rekstur sjúkrabifreiða, svo einhver dæmi séu tekin. Þá verða oft átök um fjármögnun velferðarmála; hvað flokkast sem heilbrigðismál, sem eru á verksviði ríkisins, og hvað er félagsþjónusta sveitarfélaga? Þarna er oft tekist á um skilgreiningar, svo ég tali nú ekki um menntamál, fjármögnun framhalds- og háskóla og auðvitað atvinnumál eins og sjávarútvegsmál og, eins og nefnt hefur verið síðastliðna daga í þingræðum og umfjöllun, breytingar á veiðigjaldi, bara svo einhver dæmi séu nefnd.
Frú forseti. Varðandi mál sem tengjast innviðaráðuneytinu beint og snerta hæstv. innviðaráðherra þá eru í því ráðuneyti mörg mál sem hafa áhrif á sveitarfélög með beinum hætti fyrir utan það að vera ráðuneyti sveitarstjórnarmála. Þar eru samgöngur og samgöngumál í sinni víðustu merkingu, byggðamál og fjarskipti. Fyrst ég er að tala hér sérstaklega um verkefni innviðaráðuneytisins þá er rétt að nefna mál sem lögð hafa verið fram á þessu þingi og kalla á gott samstarf milli innviðaráðuneytisins og sveitarfélaganna: Frumvarp til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum, tillaga til þingsályktunar um borgarstefnu og frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Frú forseti. Viðreisn leggur áherslu á í sinni stefnu að efla sveitarfélög svo þau séu betur í stakk búin til að takast á við lögbundin verkefni og færa þannig þjónustu og ákvarðanir nær íbúunum. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur fram að markmiðum sínum hyggst ríkisstjórnin ná m.a. með því að bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga.
Í framhaldi af þessum inngangi þá legg ég fram eftirfarandi spurningar sem ég hef sent til hæstv. innviðaráðherra: Telur ráðherra þörf á að efla og bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga? Og ef svo er, með hvaða hætti hyggst ráðherra gera það? Og í öðru lagi: Telur ráðherra að unnt sé að færa ákvarðanatöku nær íbúunum með því að auka sveigjanleika og bæta ákvarðanatöku sveitarfélaga? Og ef svo er, hvaða aðgerðir útfærslu sér ráðherrann fyrir sér?