156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

samskipti ríkis og sveitarfélaga.

96. mál
[18:39]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Eiríki Birni Björgvinssyni fyrir þessa góðu fyrirspurn um samskipti ríkis og sveitarfélaga. Það er rétt sem kom fram í máli hans að stjórnsýslustigin eru tvö og það er leitt að heyra um miður góða reynslu hans af samskiptum ríkis og sveitarfélaga sem hann upplifði þegar hann var bæjarstjóri, að það hafi verið komið fram við sveitarstjórnarmenn eins og betlara eða óþæga krakka. Ég heyrði aðeins af þessu í fjárlaganefnd á síðasta kjörtímabili þar sem ég átti sæti og það er nú þannig að íslenska ríkið er — þetta snýst allt um peninga, alla vega var þar mjög mikið rætt um það að verkefni sveitarfélaga væru vanfjármögnuð.

Það er líka rétt sem kom fram í máli hv. þingmanns að það eru mörg mál í mínu ráðuneyti sem snúa að samskiptum ríkis og sveitarfélaga; byggðamál, samgöngumál, fjarskipti, jöfnunarsjóður og sjálf sveitarstjórnarmálin að sjálfsögðu. En ég vil taka fram í þessu að ég lít svo á að við séum öll í sama liði hvað þetta varðar. Við erum að deila gæðunum út og reyna að bæta þjónustu landsins, líka nærþjónustuna og bæta þjónustu ríkis og sveitarfélaga og ég tala nú ekki um nærþjónustuna sem er í höndum sveitarfélaga. En ég vil segja að almennt eru samskipti ríkis og sveitarfélaga í mínum huga góð. Þau má hins vegar alltaf bæta og er það eitt af áherslumálum í samstarfssáttmála ríkisstjórnarinnar. Í honum segir í 1. málslið 19. gr. að ríkisstjórnin ætli að ná markmiði sínu „með því að bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga og treysta stoðir hinna dreifðu byggða“.

Ég legg sjálfur mikla áherslu á þétt samstarf ríkis og sveitarfélaga á vettvangi samstarfsnefndar ríkis og sveitarfélaga. Samstarfsnefndin er lögbundin samkvæmt sveitarstjórnarlögum, en í henni eiga sæti ráðuneytisstjórar ráðuneytis sveitarstjórnarmála og fjármálaráðuneytis, auk þriggja fulltrúa sem Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefnir. Á vettvangi nefndarinnar, sem hefur í daglegu tali verið kölluð Jónsmessunefnd, fer fram samstarf við sveitarfélögin um málefni sem tengjast stöðu og verkefnum sveitarfélaga, svo sem um lagafrumvörp sem varða sveitarfélögin, fjármál hins opinbera, verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og önnur mikilvæg mál sem varða hagsmuni sveitarfélaganna. Á fundi nefndarinnar eru kallaðir til eftir þörfum fulltrúar fleiri ráðuneyta og stofnana og sveitarfélaga. Samstarfið í Jónsmessunefnd hefur verið gott en nefndin hefur síðustu misseri leitast við að skoða hvernig samstarfinu skuli háttað til framtíðar og mætti skoða þessa umræðu í því ljósi, þ.e. samskipti innan nefndarinnar og hvernig störf nefndarinnar geti gagnast sem best.

Jónsmessunefnd fundar að jafnaði einu sinni í mánuði en efnt er til aukafundar þegar sérstakt tilefni þykir til vegna samskipta ríkis og sveitarfélaga. Undir nefndina heyra þrjár fastanefndir: Um opinber fjármál, verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og stafræna þróun, en það er nefndin um opinber fjármál sem er langveigamesta nefndin. Því til viðbótar hefur nefndin skipað tímabundna starfshópa til að leysa úr afmörkuðum verkefnum. Auk þess kemur samstarfsráð ríkis og sveitarfélaga saman að lágmarki einu sinni á ári en þar eiga sæti, ásamt mér, fjármálaráðherra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Það er ekkert launungarmál að ágreiningur milli ríkis og sveitarfélaga hefur í gegnum tíðina að mestu snúist um fjárhagsleg samskipti og þá helst kostnaðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Ýmsar skyldur eru lagðar á sveitarfélögin með lögum og stjórnvaldsfyrirmælum og oft hafa slík fyrirmæli áhrif á fjárhag sveitarfélaga. Sveitarfélögin hafa í gegnum tíðina gagnrýnt að dæmi séu um að ekki sé framkvæmt kostnaðarmat vegna lagafrumvarpa, stjórnvaldsfyrirmæla og annarra stefnumarkandi ákvarðana ríkisins eins og lög kveða á um. Hér er ég að sjálfsögðu að tala um 129. gr. laga um sveitarfélögin. Slíkt mat sé oft ekki fullnægjandi, óljóst sé hvenær í ferlinu eigi að leita umsagnar Sambands íslenskra sveitarfélaga og hvernig eigi að leysa úr ágreiningi.

Frumvarp mitt til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum felur í sér skýrara ferli um mat á fjárhagslegum áhrifum lagafrumvarpa og annarra stjórnvaldsfyrirmæla á sveitarfélögin. Auk þess er lögð til leið til að leysa úr ágreiningsmálum milli ríkis og sveitarfélaga um slíkt mat þar sem ágreiningur getur verið tekinn fyrr í Jónsmessunefnd. Frumvarpið byggist á tillögum starfshóps sem í áttu sæti fulltrúar hlutaðeigandi ráðuneyta og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Áform um breytingar á sveitarstjórnarlögum ásamt drögum að frumvarpi um framangreint voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í febrúar og af umsögnum að dæma er ljóst að sveitarfélögin fagna þessum áformum. Það er einlæg von mín að nái frumvarpið fram að ganga muni það bæta samskipti milli stjórnsýslustiganna og skapa (Forseti hringir.) aukna sátt um fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga.

Ég tel að þetta ferli sem ég hef hér lýst, þessar stofnanir sem ég hef lýst, séu mjög góður vettvangur til samstarfs (Forseti hringir.) og þessar breytingar sem eru í frumvarpinu muni leiða til betri samskipta. Það má alltaf gera betur en það mun líklega alltaf verða togstreita um peninga í íslensku samfélagi þegar kemur að ríkisútgjöldum og útgjöldum sveitarfélaga.