samskipti ríkis og sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni ræðu sína í þessari umræðu. Þetta snýst að sjálfsögðu um að bæta samskiptin og bæta vinnulag og þessa menningu. Nú þekki ég ekki þessa menningu, ég hef bara heyrt af henni, heyrði af henni í fjárlaganefnd á síðasta kjörtímabili og vissi svolítið af þessari togstreitu milli sveitarfélaga og ríkisvaldsins. Það er mjög mikilvægt að það sé gagnkvæm virðing, grundvallaratriði. Það skiptir máli hvernig þessi menning er og hvernig við getum byggt hana upp. Við verðum að horfa á þessi mál þannig að við erum hér kjörnir fulltrúar á Alþingi Íslendinga, lýðræðislega kjörnir, og þegar við erum að tala um aðra lýðræðislega kjörna fulltrúa í sveitarfélögum landsins sem sjá um sín nærsveitarfélög þá verðum við að bera virðingu fyrir því.
Ég sem ráðherra, sem mönnum líkar við, þingmenn þola mig í starfi alla vegana samkvæmt þingmeirihlutanum, þá er það mjög mikilvægt að við nálgumst sveitarfélögin. Ég sem ráðherra mun a.m.k. gera það. Ég er að hitta lýðræðislega kjörna fulltrúa í sínum heimahéruðum sem eru að sinna þjónustu við sitt nærsamfélag. Það er grundvallaratriði og það skiptir máli hvernig þessi samskipti eru og ég mun svo sannarlega beita mér fyrir því að bæta þá menningu og bara gera það þá með mínum hætti. Þá hef ég alltaf litið á það sem skyldu mína að opna dyr fyrir öllum sveitarstjórnarfulltrúum, fulltrúum allra sveitarfélaga til funda og heyra þeirra sjónarmið og hvað þeir hafa til málanna að leggja og hvernig þeir sjá málin, hvernig þau eigi að vera.
En það mun alltaf verða þannig varðandi ríkisfjármálin að þau verða alltaf vandamál, held ég. Vissulega þarf að fjármagna þau verkefni sveitarfélaganna sem eru lögbundin. Við erum t.d. með jöfnunarsjóð sem er frumvarp hér sem er til meðferðar fyrir þinginu, er núna í þingnefnd, sem er gríðarlega mikilvægt að nái fram að ganga og ég tel vera ákveðið skref til að einfalda þessi samskipti. Það einfaldar verklag sjóðsins og mun koma ákveðinni festu í þann málaflokk sem lýtur að jöfnunarsjóði og ætti að bæta samskiptin og einfalda þau.
Varðandi síðari spurningu hv. þingmanns um það hvort ég telji að unnt sé að færa ákvarðanatöku nær íbúum með því að auka sveigjanleika og bæta ákvarðanatöku (Forseti hringir.) sveitarfélaga með hvers konar aðgerðum, þá mun ég í frumvarpi, sem ég mun væntanlega leggja fram á næsta þingi, skerpa á 38. gr. sem fjallar um nefnd fyrir hluta sveitarfélags og það er þá varðandi fjölkjarnasveitarfélögin. Þá eru það sveitarfélög eins og Múlaþing, sem hv. þingmaður þekkir vel, sem er mjög góð fyrirmynd (Forseti hringir.) sem lýtur að fjölkjarnasveitarfélögum þar sem eru heimastjórnir og heimaráð þar sem er þá búið að flytja valdið. Þá erum við að færa ákvarðanatöku enn þá nær íbúunum en hingað til hefur verið gert. Það er lausnin í framtíðinni, fjölkjarnasveitarfélög og stærri og færri sveitarfélög. Það hefur verið leyst. (Forseti hringir.) Margir voru að tala um þriðja stjórnsýslustigið en lausnin er í fjölkjarnasveitarfélögum.