156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

rafræn próf í íslensku.

297. mál
[18:50]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Pawel Bartoszek) (V):

Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á stuttri persónulegri sögu. Þegar ég bjó í Danmörku fyrir einhverjum tveimur áratugum síðar þá kom að því að ég taldi að það væri kominn tími til að aðlagast betur dönsku samfélagi. Ég ákvað að skella mér í dönskunám og var þá metinn inn á ákveðið stig og hóf nám í Studieskolen við Øster Voldgade í miðbæ í Kaupmannahafnar. Það var kerfi sem var haldið mjög vel utan um og eitt af því sem ég gerði á meðan á þessu námi stóð var að fara í staðlað danskt próf sem hét þá Prøve i Dansk 3, sem svarar kannski svona til getustigs á samræmda prófinu gamla eftir 10. bekk. Mér fannst þetta svo góð hugmynd og svo skemmtilegt að ég tók líka annað dönskupróf sem hét Studieprøven, sem gefur mönnum rétt til að stunda nám á háskólastigi á dönsku. Mér fannst þetta persónulega gríðarlega hvetjandi kerfi og ég kynntist mjög fjölbreyttum hópi nemenda sem var að taka þessi stöðupróf af ólíkum ástæðum, í einhverjum tilfellum til að öðlast ákveðin réttindi, í einhverjum tilfellum einungis bara til að ná ákveðinni færni og fá einhverja viðurkenningu á því að hún væri til staðar.

Ég hef lengi barist fyrir því að við tækjum upp eitthvert svona fyrirkomulag. Ég tek það fram að ég er einn þeirra sem telja að við eigum að hafa dyrnar að Íslandi opnar, að við eigum að hafa hér samfélag þar sem dyrnar eru opnar, þar sem fólk getur komið inn og tekið virkan þátt í samfélaginu. Og sem partur af því að taka vel á móti fólki þá er líka allt í lagi að við höfum ákveðna hvatningu, ákveðnar reglur, ákveðin viðmið um hvað það er sem við hvetjum fólk til að gera sérstaklega. Það er auðvitað þannig að tungumálið okkar er eitt af því sem sameinar okkur sem þjóð og það er að mínu mati ekkert að því að við tökum upp einhverjar staðlaðar aðferðir til að prófa getu fólks í íslenskri tungu. Þess vegna gladdi það mig mjög þegar ég sá þingsályktunartillögu á síðasta kjörtímabili, sem lögð var fram af ráðherrum í þeirri ríkisstjórn, þar sem segir í 4. gr. þeirrar ályktunartillögu:

„Rafræn próf í íslensku, sem byggjast á Samevrópska tungumálarammanum, verði þróuð ásamt uppfærðri þrepaskiptri hæfnilýsingu í íslensku sem öðru máli sem leysi af hólmi núverandi námskrár um íslensku fyrir útlendinga. Innleiðing muni eiga sér stað að þróun lokinni. Virkjun tungumálarammans stuðli að auknu samræmi milli náms og kennslu í íslensku sem öðru máli á öllum skólastigum“ o.s.frv.

Ég ætla ekki að halda áfram en þarna er alla vega tímaáætlun 2024–2026 og ábyrgðin sett á mennta- og barnamálaráðherra.

Ég spyr því hæstv. ráðherra: Hvernig miðar vinnu við stöðluð rafræn íslenskupróf sem byggjast á Samevrópska tungumálarammanum CEFR, samanber þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu fyrir árin 2024–2026? Hvaða matsþrep á skalanum A1–C2 er reiknað með að prófin nái yfir fyrst þegar opnað verður fyrir þau?