156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

rafræn próf í íslensku.

297. mál
[18:54]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Pawel Bartoszek kærlega fyrir góða fyrirspurn um mikilvægt málefni sem unnið er á vettvangi mennta- og barnamálaráðherra. Stöðumat á íslenskukunnáttu innflytjenda er mikið hagsmunamál fyrir íslenskt samfélag og á sama tíma réttlætismál fyrir innflytjendur. Rafrænt hæfnimiðað stöðumat sem byggir á evrópska tungumálarammanum einfaldar mat á íslenskukunnáttu, bæði fyrir innflytjendur og fagaðila sem framkvæma matið. Slíkt stöðumat mun nýtast bæði atvinnulífinu og skólasamfélaginu, hvort sem litið er til grunnskóla, framhaldsskóla eða háskólastigsins. Þá mun framhaldsfræðsla og önnur námskeið fyrir fullorðna njóta góðs af markvissri kennslu sem er líklegri til að ná árangri. Þá verður auðveldara að meta hæfni nemenda að námi loknu samkvæmt samræmdum getustigum. Þetta er ekki síður mikilvægt fyrir einstaklingana sjálfa sem munu þannig geta sýnt fram á færni sína, t.d. þegar sótt er um starf eða nám.

Á 154. löggjafarþingi samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun um málefni íslenskrar tungu fyrir árið 2024–2026, nr. 15/154. Ein af aðgerðunum er um virkjun á Samevrópska tungumálarammanum. Ramminn er staðall sem er notaður til að meta færni í tungumálum. Hann er auðveldar skólum, fyrirtækjum og stofnunum að meta færni starfsmanna og nemenda. Með aðgerðinni er lagt til að þróuð verði rafræn próf í íslensku sem byggi á samevrópska tungumálarammanum og íslensku sem öðru máli sem leysi af hólmi núverandi námskrár um íslensku fyrir útlendinga. Virkjun tungumálarammans stuðli að auknu samræmi milli náms og kennslu í íslensku sem öðru máli á öllum skólastigum, innan framhaldsfræðslu og í sjálfsnámi og skýri kröfur til annars málshafa og fræðsluaðila.

Aðgerðin felur m.a. í sér að valdir hlutar Samevrópska tungumálarammans verði þýddir á íslensku og prófabanki þróaður með hliðsjón af honum. Aðgerðin tengist áherslum í framkvæmdaáætlun um málefni innflytjenda fyrir árin 2022–2025, nr. 29/152, samanber lið 3.7, um rafrænt hæfnimiðað stöðumat í íslensku og stuðningsefni, og fyrstu aðgerðaáætlun menntastefnu 2030, samanber aðgerð 3, um markvissan stuðning við nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Þann 17. janúar 2024 undirritaði mennta- og barnamálaráðuneytið og Háskóli Íslands samstarfssamning um að þróa rafrænt hæfnimiðað stöðumat í íslensku sem öðru máli. Um er að ræða hönnun á stöðluðu prófi á netinu til að meta hæfni í íslensku samkvæmt staðli evrópska tungumálarammans sem notað er til að meta færni í tungumálum. Stöðumati er ætlað að auka aðgengi og einfalda ferlið við mat á íslenskukunnáttu innflytjenda þannig að þeir eigi auðveldara með að nýta þekkingu sína og hæfni og taka virkan þátt í samfélaginu og á vinnumarkaðnum. Stöðumatið mun nýtast atvinnulífinu á öllum stigum skólasamfélagsins, m.a. tilvonandi kennurum sem ekki hafa íslensku að móðurmáli, samanber kröfu um hæfni kennara í íslensku og kröfur um hæfni í umsóknum um ríkisborgararétt. Þátttaka fólks af erlendum uppruna eykur fjölbreytileika, eflir íslenskt samfélag og menningu og er ein af forsendum fyrir vexti efnahagslífsins. Þá er í samningnum lögð áhersla á að með vandaðri fræðilegri vinnu við aðlögun evrópska tungumálarammans að íslensku tungumáli megi skapa grunn að námskrá, námsefnisgerð og námsmati á öllum stigum sem stuðlar að markvissari kennslu í íslensku sem öðru máli. Samhliða stöðumatinu verður þróað rafrænt stuðningsefni til að efla grunnfærni í íslensku sem öðru máli, sérstaklega tengt neðri þrepum evrópska tungumálarammans, sem skal standa öllum til boða á netinu.