rafræn próf í íslensku.
Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt að rafræn íslenskupróf byggð á Samevrópska tungumálarammanum séu nú í þróun, eins og kveðið er á um í aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu 2024–2026. Slík próf geta orðið dýrmætt verkfæri til að meta íslenskukunnáttu með skýrum og samræmdum hætti. Þau gætu nýst sérstaklega vel við innritun í nám eins og á sjúkraliðabraut þar sem margir umsækjendur hafa annað móðurmál en íslensku. Með CEFR-prófi væri hægt að meta hæfni á sanngjarnan hátt og jafnframt vísa í viðeigandi stuðning. Mikilvægt er þó að huga að tilgangi prófanna. Þau eiga að styðja við fólk, ekki hindra það og ég hlakka til að sjá og heyra hvernig verkinu miðar og hvaða hæfnistig verður fyrst í boði.