156. löggjafarþing — 45. fundur,  19. maí 2025.

rafræn próf í íslensku.

297. mál
[19:00]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Pawel Bartoszek) (V):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin sem og þeim þingmönnum sem tekið hafa þátt í umræðunni hér. Bara til skýringar þá byggir evrópski tungumálaramminn á ákveðnum hæfniviðmiðum, t.d. A1, sem er lægsta þrepið, þar segir t.d. í hlustun: Get skilið algeng orð og einfaldar setningar um sjálfan mig, fjölskyldu og nánasta umhverfi ef talað er hægt og skýrt. En t.d. í C1 þá er lýsingin: Fær notandi. Get skilið langan málflutning og flóknar rökræður. Þannig að það er kannski einhver sem á bara heima í þessum sal sem hefur náð þeirri færni og gott betur.

Það er svolítið þannig í þessari umræðu, það er kannski einhver ástæða fyrir því að þetta hefur ekki gerst enn þá — það eru alltaf einhverjar áhyggjur sem fólk hefur. Ein er auðvitað bara, held ég, það sem er alltaf þegar kemur að framkvæmd hins opinbera að fólk hefur áhyggjur af kostnaði og forgangsröðun, að það eigi frekar að nota peninga í eitthvað annað heldur en að gera þetta. Nú svo eru líka þau sem hafa áhyggjur af því að svona próf geti verið notuð til að mismuna fólki frekar en að hvetja það til að læra tungumál þannig að við getum farið að setja allt of flóknar og stífar kröfur inn í hin og þessi störfin um leið og prófin eru komin. Það eru réttmætar áhyggjur.

Ég vil hins vegar benda á að þegar litið er til Evrópulanda og hinna evrópsku tungumála þá erum við kannski undantekningin þegar kemur að þessu, þess konar prófum hefur ekki enn þá verið komið á hér. Í landi eins og Lúxemborg, sem er með málsvæði sem er svipað stórt okkar, er í miðri Evrópu, umkringt mjög stórum tungumálum, þá er hægt að taka þessi próf á stigi A2 og upp í C2. Mörgum sinnum á ári er hægt að ganga inn í einhverja opinbera prófamiðstöð og láta prófa sína færni og kunnáttu í lúxemborgísku. Ég held að við eigum að hafa metnað til hins sama þannig að ég hvet ráðherrann til góðra verka í þessu og hann mun finna fyrir hlýjum andardrætti mínum á hnakka sínum ef þessi mál dragast eitthvað.