rafræn próf í íslensku.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hlý orð og ég mun reyna að standa undir því að sjá til þess. Eins og kemur fram í hans fyrirspurn þá lýsir staðallinn færni í fimm þáttum málnotkunar, þ.e. í lestri, hlustun, samskiptum, talmáli og ritun. Er færni í hverjum þætti metin í sex stigum, eins og hann kom inn á, þ.e. A1, A2, B1, B2, C1 og C2. Þetta er bara, eins og ég segi, alveg hið besta mál. En þetta eru í sjálfu sér rafræn stöðupróf. Samin eru rafræn stöðupróf sem sýna fram á getu próftaka miðað við þrjú stig evrópska tungumálarammans. Lögð er áhersla á undirbúning á prófum á stigum A2 og B1 og B2, en það eru þau hæfnistig sem mest hefur verið kallað eftir að hægt sé að prófa í og það verður sú færni sem reiknað er með að prófin nái yfir þegar opnað verður fyrir þau og vonandi verður það sem fyrst. Sú vinna sem liggur að baki við aðlögun íslensku að evrópska tungumálarammanum mun síðan auðvelda hönnun á prófum í kjölfarið. Þessi vinna felst í söfnun viðmiðunartexta og hönnun prófa. Liður í þessari vinnu er að fá sérfræðinga í tungumálarammanum til að leiðbeina við hönnun og gerð prófsins. Slíkir sérfræðingar koma hingað á vegum Evrópska nýmálasetursins. Þetta felur í sér í grófum dráttum að kortleggja og safna upplýsingum. Fyrsta skrefið er að safna þeim gögnum og upplýsingum sem fyrir liggja í tengslum við íslensku og evrópska tungumálarammann og annað sem snertir viðmið prófsins. Þannig að, eins og ég segi, við vonum hreinlega að þetta muni allt ganga upp og verði til góðs fyrir þá sem virkilega þurfa á þessu að halda, bæði þá sem þurfa að nýta sér þetta og líka fyrir íslenskt samfélag.