156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

viðvera fjármála- og efnahagsráðherra í þingsal.

[13:31]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Mig langaði hér við upphaf þingfundar að forvitnast um hvort virðulegur forseti hafi gert eitthvað í því að fá hingað til samtals við þingmenn hæstv. fjármálaráðherra, og vísa ég þá til umræðu sem hér hefur komið fram áður varðandi orð hæstv. ráðherra um að Flokkur fólksins hafi verið í góðri trú í tengslum við styrkjamálið sem mikið var rætt hér fyrir nokkru síðan. Það hafa komið fram gögn í millitíðinni sem varpa öðru ljósi á málið og ég held að það væri skynsamlegt ef forseti fyndi leið að því að mynda hér svigrúm í dagskrá þingsins sem fyrst. Ég veit að hæstv. fjármálaráðherra er kominn til landsins þannig að ég held að það væri til bóta í hinni þéttu dagskrá sem blasir við okkur hér dagana langa, að fundinn verði tími til að eiga samtal um þessar nýju upplýsingar sem fram eru komnar og hvort þær breyti afstöðu hæstv. fjármálaráðherra til málsins í heild sinni.