viðvera fjármála- og efnahagsráðherra á þingfundi.
Frú forseti. Ég kem hingað upp til að taka undir þessa beiðni hv. þm. Bergþórs Ólasonar. Það þarf kannski ekki að minna á það en í síðustu viku fór stjórnarandstaðan þess á leit við hæstv. forseta að það yrði athugað hvenær hæstv. fjármálaráðherra gæti komið hingað til þings til þess að eiga þetta, að mínu viti, mjög brýna samtal þar sem það eru komin fram gögn sem sýna að ummæli hæstv. fjármálaráðherra um að Flokkur fólksins hafi hvorki fengið leiðbeiningarskyldu eða fengið leiðbeiningu frá ríkinu og að flokkurinn hafi verið í góðri trú, standast ekki skoðun, alla vega ríma þau ekki við þau gögn sem fram eru komin. Hæstv. forseti orðaði það þá í síðustu viku að hún myndi að sjálfsögðu grennslast fyrir um hvenær hæstv. fjármálaráðherra kæmi til landsins og gæti komið til þings og ber að þakka þau afdráttarlausu viðbrögð forseta. En nú er hæstv. fjármálaráðherra kominn til landsins og því kannski rétt að spyrja hvenær við eigum von á þessu samtali.