viðvera fjármála- og efnahagsráðherra á þingfundi.
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með hv. þingmönnum því að það er augljóst að við verðum að fá svar frá hæstv. fjármálaráðherra í þessu skrýtna máli. Mér fannst það nú skýrast ágætlega, það er auðvelt að útskýra það fyrir fólki, þegar við sáum frétt um að Fjölskylduhjálp Íslands, sem eru samtök sem hafa hjálpað mörgum í brýnni neyð, hafi fengið þau skilaboð frá formanni Flokks fólksins að samtökin hefðu ekki uppfyllt skilyrði. Þau bara sóttu ekki um á réttum tíma sem þýðir það að þú færð ekkert úthlutað. Það var mjög skýrt í því tilfelli. Eðlilega hefur verið spurt hvað gerðist í þessu tilfelli með Flokk fólksins. Hæstv. fjármálaráðherra svarar, sem er svolítið nýstárlegt, að Flokkur fólksins hafi verið í góðri trú. Það dugar nú engum öðrum heldur en flokki í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að beita því fyrir sig. En nú liggur fyrir að það stenst ekki þannig að ég held, virðulegi forseti, að það sé mjög mikilvægt að forseti (Forseti hringir.) hlutist til um það að hæstv. fjármálaráðherra svari þessu og útskýri þetta betur.