156. löggjafarþing — 46. fundur, 20. maí 2025.
viðvera fjármála- og efnahagsráðherra á þingfundi.
Það er rétt að hæstv. forseti taki fram að gefnu tilefni að óskin er fram komin frá hv. þingflokksformönnum og þingmönnum. Mér var ekki kunnugt um hvort hæstv. ráðherra væri kominn til landsins eða ekki. Okkur er hins vegar öllum kunnugt um það að hann er á dagskrá hér í óundirbúnum fyrirspurnum seinna í vikunni. En það er sjálfsagt að forseti kanni með ósk sem hér er fram komin.