viðvera fjármála- og efnahagsráðherra á þingfundi.
Virðulegi forseti. Ég þakka það að hv. þingmaður í stjórnarliðinu komi hér upp. En af því að hv. þingmaður sagði að enginn hlustaði þá hvet ég hv. þingmann til að kynna sér málið því að hér kemur hæstv. ráðherra og segir að Flokkur fólksins hafi verið í góðri trú, sem dugar engum öðrum, ekki Fjölskylduhjálpinni eða neinum öðrum, ekki fólki í atvinnurekstri en það dugar Flokki fólksins. Svo koma bara gögn sem sýna fram á það að þau svör standist ekki, það bara geti ekki staðist. Þá hljóta hv. þingmenn í stjórn og stjórnarliði að vilja fá svör ef hv. þingmenn á annað borð kynna sér mál, því að þjóðin á auðvitað rétt á því að fá svör við þessu. Ef hæstv. ráðherra segir: Flokkurinn var í góðri trú, en svo koma upplýsingar um að það geti bara ekki staðist þá hljóta menn að kalla eftir svörum, eðlilega, og ég get ekki ímyndað mér annað en að allir hv. þingmenn séu sammála um að það gerist.