156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

viðvera fjármála- og efnahagsráðherra á þingfundi.

[13:38]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Ég vil nú benda hv. þingmönnum Sjálfstæðisflokksins á það að þessi mál eru til meðferðar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og það virðist koma ítrekað fram að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins virðast ekki treysta formanni þeirrar nefndar til þess að ljúka málum og fara yfir þau. Í gær var formaður Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir, hér að grípa fram fyrir hendurnar á honum sérstaklega með rannsóknarnefnd, og í dag koma enn og aftur þingmenn Sjálfstæðisflokksins og brydda upp á máli sem er til meðferðar. Ég bara spyr: Er svona mikið vantraust innan Sjálfstæðisflokksins á hv. þm. Vilhjálm Árnason? Ég veit ekki betur en að hann sé að rækja þetta starf ágætlega í nefndinni og ég skil ekki hvers vegna þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru síðan að koma hér upp ítrekað og hálfpartinn að kvarta undan því að eitthvað komi ekki fram í máli sem er til meðferðar hjá hv. nefnd. (GÞÞ: Alls ekki og ég … )