156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

viðvera fjármála- og efnahagsráðherra á þingfundi.

[13:40]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég þakka fyrir að virðulegur forseti sé meðvitaður um málið og hafi heyrt þær óskir sem hér hafa fram komið. Það að vísa til óundirbúins fyrirspurnatíma á fimmtudaginn er auðvitað ekki fullnægjandi, sérstaklega í því ljósi að hér er sett nýtt héraðsmet í undanslætti í hverjum einasta fyrirspurnatíma þar sem ráðherrar hafa gert það að sérstöku keppikefli að því er virðist að svara ekki þeim spurningum sem fram eru settar. Þann tíma sem ég hef verið hér á þingi hef ég aldrei orðið vitni að jafn einörðum vilja til að svara ekki þeim spurningum sem fram eru settar. Ég vil bara leggja inn í þessa umræðu þá ósk frá okkur í stjórnarandstöðunni um að fundinn verði tími fyrir þetta samtal við hæstv. fjármálaráðherra, að virðulegur forseti líti ekki til þess að það sé fullnægjandi fyrir okkur að fá tækifæri til að eiga orðastað við ráðherra í fyrirspurnatíma, sérstaklega í ljósi þess hversu listilega mönnum tekst nú um stundir að koma sér undan því sem spurt er um.