viðvera fjármála- og efnahagsráðherra á þingfundi.
Virðulegi forseti. Ég vil einmitt koma hingað og ræða um fundarstjórn forseta eða hvernig forseti hyggst tala við hv. stjórnarþingmenn og hæstv. ríkisstjórn um það hvernig hún kemur fram gagnvart þinginu þegar þingið vill fá svör frá hæstv. ráðherrum. Það er eitt sagt í ræðustól Alþingis sem kemur svo á daginn að orkar alla vega tvímælis að sé rétt sagt. Þá er það eðlileg krafa hjá þingheimi sem situr ekki allur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd — stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd er að fjalla um málið í heild sinni og kalla til sín gögn og annað og það er bara allt önnur umræða heldur en það samtal sem fer hér fram og þarf að vera dýnamískt. Því hvet ég hæstv. forseta að tryggja það að þingheimur geti spurt hæstv. ráðherra út í orð þeirra og út í það sem stangast á við það sem kemur fram í fjölmiðlum og ráðherrar hafa sagt hér í ræðustól Alþingis.