156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

Störf þingsins.

[13:45]
Horfa

Karólína Helga Símonardóttir (V):

Virðulegi forseti. Mig langar að nota þetta tækifæri og koma inn á umræðuna um andlega líðan barna. Öll viljum við að börnin okkar séu hamingjusöm og að þeim líði vel. En eitt af því sem gleymist í umræðunni um andlega heilsu eru áhrif snjalltækja. Ég velti fyrir mér: Af hverju erum við ekki með markvissari forvarnir og upplýsingagjöf til barna og foreldra um hve mikil áhrif ofnotkun snjalltækja getur haft á líðan? Mörg smáforrit og miðlar eru hönnuð til þess að ná fram ofurörvun. Allt taugakerfið fer á yfirsnúning, öndunin verður örari og blóðþrýstingur hækkar. Þegar streitukerfi líkamans fer á fullt kemur stundum fram hegðun sem við, foreldrar, berjumst sífellt við að vinda ofan af, einkenni eins og skapsveiflur, einbeitingarleysi, lítill áhugi á öllu sem tengist ekki snjalltækinu, slakari félagshæfni og tilfinningastjórnun sem bitnar einna helst á börnunum sjálfum. Slæm geðheilsa og skortur á félagsfærni verður ekki til í tómarúmi. Sé streitukerfi líkamans sífellt að störfum vegna skjánotkunar hefur það langvarandi afleiðingar. Því er of mikil skjánotkun barna án nokkurs vafa geðheilbrigðismál. En börn læra það sem fyrir þeim er haft því það er jú okkar að bera ábyrgð á þessari þróun. Það er okkar fullorðna fólksins að bera ábyrgð á hvernig staðan er orðin. Við þekkjum þetta sjálf, hv. þingmenn. Ég er sjálf sek um að taka upp símann þegar mér leiðist og ég hef oftar en einu sinni rétt barninu mínu símann til að stytta því stundir. En ég vil gera betur.

Virðulegi forseti. Snjalltæki eru mörg góð til síns brúks, sér í lagi fyrir börn sem reiða sig á þau til tjáningar. Ofurörvun vegna snjalltækjanotkunar er hins vegar geðheilbrigðismál sem við verðum að taka höndum saman um og gera að landlægu forvarnaverkefni. En við verðum að byrja á okkur sjálfum.