156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

Störf þingsins.

[13:49]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Mig langar að kom með litla sögu úr hversdagslífinu. Við ræðum hér á eftir um breytingu á lögum um leigubifreiðar sem fóru hér illu heilli í gegnum þingið árið 2022 með fyrirsjáanlegum afleiðingum. Ég kom til landsins í gegnum flugvöllinn í Keflavík í gær og þurfti, þá sjaldan að það gerist, að taka leigubíl þaðan. Þegar ég settist upp í leigubílinn og það kom á daginn að ferðin var stutt var það fyrsta sem ég heyrði, með leyfi forseta: „You will have to take another car.“ — Þú þarft að taka annan bíl. Ég þóttist ekki heyra þetta. Ég var skömmu síðar spurður hvort ég væri Íslendingur og ég ákvað að spila með og neitaði því, sagðist vera annarrar þjóðar og var síðan spurður hvort ég væri þarna sem túristi. Síðan er mér skutlað á þann stað sem ég hafði óskað eftir að vera færður á og þá kemur á daginn að ég hafði verið munstraður á stórhátíðartaxta klukkan 4 á mánudegi.

Mig langaði bara að nefna þetta hér í samhengi við að við erum að fara að ræða þessar breytingar sem nauðsynlegar eru og blöstu við allan tímann að yrðu áhrif þess sem samþykkt var hér árið 2022. Og í ljósi þess að hv. þm. Grímur Grímsson ræddi hér um skipulagða glæpastarfsemi rétt áðan þá held ég að við þurfum aðeins að komast úr þeim gír að vera jafn bláeyg og við höfum oft verið og horfa á þessa starfsemi — meginþorrinn er heiðvirðir, góðir leigubílstjórar og það er enginn sem velkist í vafa um það, en þarna innan um eru svartir sauðir sem ég held að við þurfum að fara að nálgast af þeirri festu sem slíkir skilja. Það er auðvitað fyrir neðan allar hellur að við höfum hér vitneskju um það til að mynda að það hefur verið stundað stórkostlegt svindl í þeim prófum sem eru undanfari þess að fá þessi réttindi. En mér þótti svona ástæða til að nefna þetta hér í upphafi þessarar umræðu sem fram undan er um breytingar á lögum um leigubíla. Þetta var svona raunheimareynsla af því sem hefur verið lýst hér mánuðum saman sem hálfgerðu stríðsástandi á Keflavíkurflugvelli.