156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

Störf þingsins.

[13:53]
Horfa

Diljá Ámundadóttir Zoega (V):

Virðulegi forseti. Foreldrar langveikra og fatlaðra barna eru sérstaklega útsettir fyrir álagstengdum veikindum og heilsukvillum vegna aukinnar umönnunarbyrði. Einstæðir foreldrar eru í enn meiri áhættu. Sú sem hér stendur tilheyrir báðum hópum og hefur reynslu af því að þurfa að stíga tímabundið út af vinnumarkaði til að byggja sig aftur upp á ný. Álagið sem fylgir því að hafa verið ítrekað með lífshættulega veikt barn og þurfa að dvelja langtímum saman inni á barnaspítala endar með því að taka yfir taugakerfið, stinga pinna í hjólið svo að allt verður stopp. Mín saga er hvorki einsdæmi né verri eða vægari en fjöldi annarra sambærilegra saga. Þrátt fyrir að við eigum hér úrræði á borð við VIRK er staðan sú að fólk í þessari stöðu er alfarið upp á velvild stjórnenda komið. Því miður hafði ég hana ekki. Mér var sagt upp störfum eftir að hafa verið í tæpa þrjá mánuði í veikindaleyfi. Því miður er það ekki einsdæmi heldur.

Forseti. Við hljótum að vilja búa í samfélagi sem tryggir þessum hópi í mjög viðkvæmri stöðu sömu verndandi réttindi og aðrir foreldrar njóta, svo sem í fæðingarorlofi eða jafnvel sorgarleyfi, og banna uppsagnir á meðan á veikindaleyfi stendur. Lög um bann við uppsögnum vegna fjölskylduábyrgðar starfsmanna var bæði stórt og mikilvægt skref til að tryggja foreldrum langveikra og fatlaðra öryggi einmitt þegar þau þarfnast slíks öryggi sem mest. Hér er þó hægt að gera enn betur og við verðum að gera betur. Frá því að lögin voru samþykkt hafa rannsóknir um áhrif og afleiðingar áfalla, álags og streitu á heilsu, bæði geðheilsu og líkamlega heilsu, staðfest að slík áhrif eru veruleg og þarfnast viðbragða og meðferðar. Ég tel því nauðsynlegt að fjölskylduábyrgð í skilningi laganna nái einnig yfir foreldra sem veikjast vegna álags sem tengt er aukinni umönnunarábyrgð. Ég hlakka til samtals við ykkur, kæru félagar á þingi, um þetta mál sem er bæði sanngjarnt og réttlátt og yrði enn eitt skref til að gera okkar góða samfélag enn betra.