156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

Störf þingsins.

[13:58]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Nýtt frumvarp um framhaldsskóla liggur fyrir þinginu. Í því eru varhugaverðar breytingar sem koma ekki til með að bæta gæði skólastarfs, sérhæfingu skóla, fjölga ólíkum skólagerðum eða koma til móts við ólíka stöðu hvers nemanda fyrir sig. Í frumvarpinu kveður við þann pólitískan tón að fletja eigi út sérkenni framhaldsskólanna og móta þá alla í sama form. Einnig er verið að gengisfella námsárangur og þekkingu með því að ávarpa sérstaklega þessa þætti, að þeir hafi ekki sama vægi við innritun og áður hefur verið. Þetta er klár pólitík og einmitt púsl í þeirri stefnu sem hefur komið menntakerfinu út í skurð. Völdin eru líka tekin af nemendum til að taka ákvarðanir og bera ábyrgð á eigin félagslífi. Þar er verið að hafa tækifæri af nemendum til þroska og aukins sjálfstæðis. En það versta kannski í þessu er að góðum skólabrag er gefið langt nef og ætlunin er að regluvæða hegðun nemenda sem, ef vel er athugað, er líklegast brot á stjórnarskrá. Einstök dæmi úr skólastarfi eru notuð til að réttlæta að setja í lög verulega íþyngjandi viðurlög sem bitna á börnum. Góður skólabragur og jákvæð og uppbyggileg tengsl innan skólanna er mun líklegra til að stuðla að æskilegum viðhorfum og hegðun allra innan skólanna og bæta líðan og námsárangur. Gildandi lög taka ágætlega utan um það sem sterkir og góðir skólamenn standa fyrir. Þær breytingar sem boðaðar eru veita veikustu skólunum og stjórnendunum falskt öryggi um betri tíð og blóm í haga. Það er alkunna að regluverk breytir seint óæskilegum viðhorfum og hegðun en það gerir hins vegar góður skólabragur.