156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

Störf þingsins.

[14:00]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég kem hér upp í ræðustól þegar sólin skín úti og landsmenn flestir eru farnir að leyfa sér að dreyma um sumarfríið fram undan og hvernig þau ætli að verja tíma sínum í sumarfríinu. Ég var sjálfur farinn að láta hugann reika að þessu með morgunkaffinu þegar ég rak augun í fréttir á mbl.is um að sveitarfélagið Rangárþing eystra sé að auglýsa lóðir Ferðafélags Íslands og Útivistar í Þórsmörk, Goðalandi og Emstrum til leigu á markaðsforsendum til hæstbjóðenda. Mér svelgdist aðeins á kaffinu við þessar fréttir enda eru þarna einhverjar fallegustu náttúruperlur landsins sem tengjast við einhverjar bestu gönguleiðir landsins. Maður á nú ekki að monta sig í ræðustól en maður er að fara að hlaupa Laugaveginn í sumar og hefur margoft gengið þarna um Fimmvörðuhálsinn og þykir afar vænt um þetta svæði og ég veit að okkur þykir það flestum. En þarna finnst mér líka verið að gefa frjálsum félagasamtökum að vissu leyti langt nef þar sem sjálfboðaliðar hafa um áratugaskeið ræktað upp landið, byggt upp skála og öfluga aðstöðu fyrir landsmenn alla til að njóta. Þetta eru þjóðlendur í eigu þjóðarinnar og ég tel að það sé okkar skylda að við stöndum vörð um þetta svæði og séum ekki að nálgast þetta út frá markaðslegum forsendum ferðamennskunnar og þarna eigi að fara að byggja upp einhvers konar lúxusferðamennsku eins og ýjað er alla vega að í fréttinni. Ég vil við þetta tækifæri hvetja sveitarfélagið og ráðuneytin og þingheim til að standa vörð um Þórsmörkina okkar, standa vörð um þessi svæði og tryggja að þau séu enn þá aðgengileg, að við séum enn þá með verndunarsjónarmið og að þetta sé almenningsrými, þar sem þarna eru frjáls félagasamtök með tjaldsvæði og skála á lágu verði og að við förum ekki að lúxusmarkaðsferðamennskuvæða öll svæði landsins. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)