156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

Störf þingsins.

[14:03]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég held að það sé ágætt núna þegar um hálft ár er síðan þessi ríkisstjórn tók við að fara aðeins yfir störf hennar. Það verður ekki frá hæstv. ríkisstjórn tekið að hún stundar sjálfshól og er búin að halda nokkra blaðamannafundi um hversu góð hún er, kallar sig verkstjórn, en það er umhugsunarefni að ríkisfjármál, vinnulag við það, hefur farið áratug aftur í tímann eftir að þessi hæstv. ríkisstjórn tók við. Skattahækkanir heita núna, þegar kemur að atvinnulífinu, leiðréttingar, skattahækkanir á almenning heita skattar á ferðamenn og að loka glufum. En fólkið þarf nú samt sem áður að borga meira.

Hagræðing sem unnið var eftir í síðustu ríkisstjórn er sem betur fer að einhverjum hluta fylgt eftir en það á að nýta hana í önnur útgjöld og aðrar ríkisstjórnir eiga að ná skuldamarkmiðum. Þessi ríkisstjórn ætlar ekki að gera það. Verkstjórnin leggur rosalega áherslu á að endurflytja mál fyrri ríkisstjórnar, sem er ágætt en kannski ekki í samræmi hvernig hún talar um í síðustu ríkisstjórn. 53% af þeim málum sem eru flutt eru endurflutt og 42% eru síðan innleiðingar EES.

Það sem ég hef hins vegar miklar áhyggjur af fyrir utan þetta er að það er sérstakt markmið að kljúfa þjóðina. Það er markmið ríkisstjórnarinnar að kljúfa þjóðina. Nú er þessi ESB-vegferð hafin. Ég vek athygli á því, virðulegi forseti, að það eru aðrar þjóðir í Evrópu sem eru ekki í Evrópusambandinu. Eru þær að fara þessa leið? Er Sviss að fara þessa leið? Nei. Norðmenn, með ESB-sinna í forystu, segja: Við ætlum ekki að kljúfa okkar þjóð, við förum ekki í þessa vegferð. Meira að segja forsætisráðherra Breta — sem að vísu var að fórna aftur fiskinum til Evrópusambandsins því að það er nú þannig að Evrópusambandið vill fiskinn, fiskimiðin hjá aðildarríkjunum — þorir ekki að fara þá leið.

En nú erum við að byrja að setja viðbótarfjárauka, setja fjármagn inn í (Forseti hringir.) allra handa félög til að fara að ræða Evrópusambandið. Það er aðferð sem er þekkt. Kannski er ein aðferðin til að fá fólk til að aðhyllast að ganga í Evrópusambandið að styrkja það með fjármunum til að ræða Evrópusambandið.