156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

Störf þingsins.

[14:05]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf):

Frú forseti. Hér í dag langar mig að ræða náttúruhamfarir og varnir gegn þeim. Gríðarleg sjávarflóð síðla vetrar sýna okkur að mikilvægt er að endurskoða okkar forgang þegar kemur að vörnum gegn sjávarflóðum en best væri ef við færum vel yfir allar okkar varnir gegn náttúruhamförum. Mikil þekking er á vörnum gegn ofanflóðum og góður árangur hefur náðst í vörnum gegn flóðum í ám og vötnum. Ég tel að nú væri tímabært að taka aftur upp umræðu um hamfarasjóð, sem væri forvarna- og viðbragðssjóður að fyrirmynd ofanflóðasjóðs. Ef við nýttum hluta þeirra fjármuna sem ætlaðir eru í ofanflóðavarnir í aðrar varnir gegn náttúruhamförum gætum við dregið úr tjóni og minnkað verulega þá hættu sem íbúar og gestir okkar hér á landi geta lent í. Rannsóknir Alþjóðabankans og Sameinuðu þjóðanna sýna að með hverri krónu sem varið er í forvarnir má spara a.m.k. 6 kr. í minna tjóni og langtímaáhrifum hamfara. Þó er mikilvægt að klára allar þær aðgerðir sem eru á skipulagi varðandi ofanflóðavarnir.

Virðulegi forseti. Eins og ég hef hér reifað er mikilvægt að ríkið nýti núverandi fjármögnun og sjóði með öflugum hætti vegna varna gegn fleiri tegundum náttúruhamfara. Við verðum einnig að taka tillit til loftslagsbreytinga og hamfara sem tengjast þeim. Þetta er allt saman að miklu leyti á verkefnasviði sveitarfélaga en með hamfarasjóði væri hægt að nýta fjármagn og tekjuöflun sem þegar er til staðar í þágu varna í sveitarfélögum, íbúum og gestum þeirra til heilla.