156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

Störf þingsins.

[14:07]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. 40 ára frelsi í útvarpsrekstri hér á landi verður fagnað á næsta ári en það var afar stórt skref þegar það komst loks á eftir áratuga ríkiseinokun. Fréttaþjónusta og dagskrárgerð einkarekinna fjölmiðla eru mikilvægur hluti af lýðræðislegri umræðu í samfélaginu í dag, ekki síst Stöðvar 2 og Bylgjunnar sem hafa staðið í baráttunni í nærri 40 ár og ég held að ekkert okkar vildi sjá á bak þeim ágætu miðlum eða öðrum sem sinnt hafa öflugri dagskrárgerð og fréttaflutningi á öldum ljósvakans og á samfélagsmiðlum. Þetta er sjálfsagður hluti af lýðræðislegri umræðu og þátttöku og ég held að við séum öll sammála um það. Okkur greinir á um hver umsvif RÚV eigi að vera á þessum markaði og það er önnur umræða, RÚV sem fær um 10 milljarða árlega í afnotagjöld og auglýsingar. Það er vægast sagt ójöfn samkeppni að vera í og má líkja við kraftaverk hvernig einkafyrirtækin hafa þó lifað af enda stöðugt verið í að hagræða og skera niður í gegnum árin. Ég hvet til þess að gerðar verði raunverulegar breytingar á þeirri ójöfnu stöðu enda hefur rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla snarversnað á síðastliðnum árum þegar ekki bara er keppt við ríkisstyrkt RÚV um auglýsingar heldur erlenda fjölmiðla og streymisveitur. En á meðan málin eru til endurskoðunar til framtíðar liggur nú fyrir þinginu frumvarp um breytingar á stuðningi ríkisins til einkarekinna fjölmiðla sem stærstu miðlarnir hafa verulegar áhyggjur af. Þá munar mikið um að gert sé ráð fyrir að hámarksframlag verði lækkað úr 25% í 22% af heildarframlögum. Í glænýrri umsögn frá Sýn hf. til Alþingis er það sagt hreint út að þessi lækkun, ef af henni verður, muni minnka möguleika einkareknu miðlanna til að halda úti öflugri fréttaþjónustu.

Kæri þingheimur. Komum í veg fyrir stórslys á íslenskum fjölmiðlamarkaði (Forseti hringir.) og fyrir lýðræðislega umræðu á meðan það er hægt. Það verður að hætta við þessa aðgerð og gefa það út sem fyrst.