156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

Störf þingsins.

[14:09]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Flokkur fólksins hefur lengi talað fyrir verkefninu Kveikjum neistann í borgarstjórn sem og á hinu háa Alþingi. Um er að ræða rannsóknar- og þróunarverkefni sem Grunnskóli Vestmannaeyja hefur tekið virkan þátt í með nemendum sínum í tæp þrjú ár núna, jafnvel lengur. Markmið Kveikjum neistann er metnaðarfullt; að bæta læsi og nám allra barna á markvissan og einstaklingsmiðaðan hátt. Notuð er hljóðaaðferð við lestrarkennslu með öflugri eftirfylgni og sérsniðnir þjálfunartímar þar sem hvert barn fær viðeigandi áskoranir. Stundatöflu hefur verið breytt, dagurinn einfaldaður, hreyfing aukin og settir inn svokallaðir ástríðutímar sem vekja gríðarlega lukku. Frá upphafi hefur árangurinn verið mældur reglulega og lofar góðu. Að upplifa árangur og finna færni sína vaxa hefur bein áhrif á vellíðan og sjálfstraust. Það góða við Kveikjum neistann er að nálgunin kveikir áhuga, byggir upp og mætir börnum af virðingu og umhyggju.

Staða margra nemenda í lestri og lesskilningi er ekki nógu góð. Þetta hafa m.a. PISA-kannanir sýnt okkur undanfarin ár. Úr þessu má ekki gera lítið eða hunsa. Því miður hefur ekki verið lögð næg áhersla á þessi mál hjá síðustu ríkisstjórn og hefur vanlíðan barna vaxið eins og margar skýrslur hafa staðfest. Þegar litið er til barna af erlendum uppruna kemur í ljós að yfir 90% þeirra eru metin á rauðu eða gulu ljósi í íslenskukunnáttu sem kallar á tafarlausar aðgerðir. Einnig þarf að huga sérstaklega að þeim börnum sem ekki geta nýtt sér hefðbundnar kennsluaðferðir. Í nýju frumvarpi um breytingar á grunnskólalögum eru þessi mál ávörpuð. Ríkisstjórnin, með og mennta- og barnamálaráðherra í fararbroddi í þessum málaflokki, hefur lagt línurnar svo hugað sé að þörfum allra barna á þessu sviði. Nú er röðin komin að börnum þessa lands og ekkert þeirra skal skilið út undan. Kveikjum neistann um allt land.