Störf þingsins.
Frú forseti. Ég ætla að koma hingað undir þessum lið og tala um mál sem mig langar ekkert til þess að tala um hér í dag, sem er auðvitað staðan fyrir botni Miðjarðarhafs og sérstaklega á Gaza. Við verðum að halda þessari umræðu á lofti. Mig langar til þess að vekja athygli þingheims á því að á næstu 48 klukkustundum munu 14.000 börn svelta til dauða ef ekkert verður að gert. Ég endurtek: Það munu 14.000 börn deyja á næstu 48 klukkustundum ef mannúðaraðstoð kemst ekki inn á svæðið. Þetta segir fulltrúi Sameinuðu þjóðanna og við höfum ekki nokkra einustu ástæðu til að vefengja það sem hann segir um þetta mál.
En nú er líka ágætt að horfa til þess hvað hefur eiginlega gerst á síðustu 48 klukkustundum. Hvað hefur gerst? Fyrir helgi leiddi forsætisráðherra Íslands Kristrún Frostadóttir samtal ásamt forsætisráðherra Spánar um það að undirrituð yrði yfirlýsing sjö þjóða, þ.e. sjö þjóðarleiðtoga, um að mannúðaraðstoð kæmist til Gaza og að vopnahléi yrði komið á samstundis. Síðan þá hafa 22 utanríkisráðherrar ritað undir sambærilega yfirlýsingu og þjóðarleiðtogar Bretlands og flestra norrænu ríkjanna hafa látið hafa eftir sér yfirlýsingar sem við hefðum ekki endilega átt von á að kæmu fram í síðustu viku. Ég vil biðla til þingheims alls að gefa sig að umræðunni og láta þessa umræðu og þessa einföldu en mikilvægu kröfu vera skýra, vegna þess að hún er ekki til einskis. Það er hlustað á okkur. Þetta er ekki máttleysi og þetta er ekki til einskis að styðja. Ég bið hæstv. Alþingi að rífast um bókstaflega allt nema þetta.
(Gripið fram í: Heyr, heyr.)