Störf þingsins.
Frú forseti. Merkilegu frumvarpi var dreift til þingmanna hérna í upphafi fundar. Nú virðist ríkisstjórnin hafa gert hlé á yfirlýstum hagræðingaraðgerðum og ákveðið að fara í hina áttina, nefnilega með því að bæta í launuð nefndarstörf alþingismanna með því að festa svonefnda framtíðarnefnd í sessi út þetta kjörtímabil í stað þess að leyfa henni að renna sitt skeið á enda, eins og stóð til að óbreyttu. Um leið á að veita formanni nefndarinnar sérstaka 10% launaviðbót sem hefur ekki verið en kemur í hlut hv. formanns nefndarinnar, Jóns Gnarrs. Fortíð framtíðarnefndar er, eins og mér skilst á fróðari mönnum hér í þinginu, að það hafi verið Katrín Jakobsdóttir, hæstv. þáverandi forsætisráðherra, sem kom henni á laggirnar við mikla ánægju Pírataflokksins sem átti fyrsta formanninn. Ef grunur vaknar við þá frásögn um að inntak nefndarstarfanna hafi verið svona helst til mikið í anda Gretu Thunberg, sem þá var andlegur leiðtogi okkar Íslendinga, þá held ég að sá grunur hafa ekkert endilega reynst rangur. Það hefur margt verið brallað í sjö ára sögu nefndarinnar, ófáar málstofurnar með hagaðilum um lýðræði, mannréttindi, loftslagsmálin, þessi góðu mál. En ég held að allir séu sammála um það á þessu stigi máls að gagnið hafi hingað til verið takmarkað, ef nokkuð. Eins og gefur að skilja fórum við í Miðflokknum með mjög opinn hug og af okkar alkunnu víðsýni í starf þessarar nefndar í upphafi þings og vildum vita í hvað stefndi. Eftir töluverð samtöl, yfirlegu og ágæta samvinnu þá höfum við því miður komist að þeirri niðurstöðu á þessu stigi máls að best fari á því að leggja þessa nefnd niður. Það er ekki út af því að framtíðarnefnd snýst um framtíðina og við í Miðflokknum elskum fortíðina, þótt við gerum það, lögðum meira að segja til að nafninu yrði breytt í fortíðarnefnd, við dræmar undirtektir. En við erum ekki fúl yfir því. Við erum á móti framtíðarnefnd einmitt vegna þess að við teljum ekki vera mikla framtíð í þessari nefnd. Þetta hefur ekki borið ávöxt. Mér hafa ekki fundist samtöl hingað til benda til þess að það geti breyst og þess vegna segjum við: Kröftum okkar alþingismanna og enn fremur fjármunum skattgreiðenda er betur varið í eitthvað annað miklu gagnlegra en framtíðarnefnd.