156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

Störf þingsins.

[14:16]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Ég þakka fyrir að fá að koma aftur í pontu. Flest þekkjum við það að tala erlent tungumál og vera ekki með tungumálið alveg á hreinu. Tilfinningin sem læðist að manni er sú að það sé erfitt að segja nákvæmlega það sem manni býr í brjósti, það sem maður vill koma á framfæri. Orðfærið verður fábreytt, einfalt og lítt lýsandi. Það er eins og maður sé orðinn sex ára aftur þegar orðaforðinn er tekinn af manni, hugtakaskilningurinn. Það er erfitt að fá þá tilfinningu að geta ekki komið hugsunum sínum í orð og geta ekki tekið þátt í samtali sem reynir á. Við þessar aðstæður verða menn líklegri til að draga sig í hlé, tjá sig minna og hafa því um leið mun minni áhrif á allt samfélag sitt. Við Íslendingar höfum nú tekið á móti tugþúsundum manna sem tala ekki íslensku. Margt af þessu fólki hefur fest rætur hér og er mikilvægur hlekkur í atvinnulífi okkar. Við höfum að mörgu leyti brugðist þessu fólki með því að kenna því ekki markvisst og samræmt íslensku með árangursríkum hætti.

Til að taka fullan þátt í lýðræðinu og samfélaginu leikur íslenskan lykilhlutverk. Með hana í vopnabúrinu eru miklu meiri líkur á að fólk aðlagist, tengist samfélaginu og verði fullgildir þátttakendur í lýðræðinu. Án íslenskunnar eru miklar líkur á jaðarsetningu, að fólki finnist það ekki tilheyra og að árekstrar verði milli þess og annarra. Til að undirstrika þetta ættum við strax að ræða það að í leikskólunum ætti að vera ríkulegt og gott íslenskt umhverfi fyrir öll börn og þá sérstaklega börn af erlendum uppruna. Þar er grunnurinn lagður. Kennum aðkomnum íslensku, minnkum líkur á ófriði, vinnum að því að sem flestir tilheyri, til hagsbóta fyrir alla.