156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

afbrigði.

[14:22]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við í Sjálfstæðisflokknum munum greiða atkvæði með afbrigðunum til að þetta komist á dagskrá. Það kemur okkur samt á óvart hversu seint málið kemur inn til þingsins miðað við hvenær það var samþykkt úr ríkisstjórn, ef það liggur svona mikið á málinu eins og hér virðist vera.. Það er ekki einu sinni tími til að bíða eftir starfshópnum sem er að fara yfir hvað er að á leigubílamarkaðnum sem er mjög mikilvægt að fara yfir þannig að við fögnum því svo sem að fá þá umræðu. En það kemur mér á óvart að þessi tími hafi þá ekki verið nýttur í að koma með gögn og vinnu við það að komast að því hvað þarf og hvort yfir höfuð þurfi að breyta lögum áður en komið er með frumvarpið hingað inn. Þetta frumvarp lítur út eins og það sé bara verið að tikka í box um að hafa breytt leigubílalögum en það er ekkert annað sem stendur í þessu frumvarpi og ræðum við það betur hér á eftir.