156. löggjafarþing — 46. fundur,  20. maí 2025.

afbrigði.

[14:25]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við munum eiga orðastað við hæstv. ráðherra um þetta mál og ég tek undir að það vekur upp spurningar af hverju það er komið hingað til þings eins og það er umbúið. Varðandi vissulega það vonda ástand sem er í samfélaginu varðandi leigubílarekstur þá get ég ekki alveg séð endilega að þetta frumvarp muni leysa það en við ræðum það betur við hæstv. ráðherra hér á eftir.

En varðandi afbrigði þessi, sem Sjálfstæðisflokkurinn mun samþykkja, þá verðum við hér að minna á, eftir að hafa setið að ósekju undir alls konar gífuryrðum af hálfu hv. stjórnarliða um málþóf og ég veit ekki hvað, eins og hv. stjórnarliðar viti ekki að það er bara ekki hægt við 1. umræðu að stunda neitt slíkt — en að forseti kannski muni þá að við erum hér að greiða fyrir þessu máli. En þegar það er fyrirsjáanlegt að hér mun reynast erfitt að afgreiða þau mýmörgu mál sem hér bíða, bæði í nefndum og afgreiðslu í þingsal, þá er það stjórnarmeirihlutinn sem er hér að setja glænýtt mál á dagskrá örfáum vikum fyrir þinglok.