leigubifreiðaakstur.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um leigubifreiðaakstur. Þann 1. apríl 2023 tóku gildi ný heildarlög um leigubifreiðaakstur. Með lögunum voru meðal annars afnumdar fjöldatakmarkanir á útgáfu starfsleyfa ásamt afnámi stöðvaskyldu og gjaldmælaskyldu þegar samið er um verð fyrirfram. Í aðdraganda breytinganna var ekki tekið nægilegt tillit til sjónarmiða leigubifreiðastjóra og stéttarinnar í heild. Hagsmunasamtök þeirra lýstu sig alfarið andvíg breytingunum og töldu þær myndu leiða til lakari þjónustu og aukins óöryggis, bæði fyrir farþega og ökumenn. Þingflokkur Flokks fólksins greiddi atkvæði gegn frumvarpinu og varaði sérstaklega við neikvæðum afleiðingum þess.
Í núgildandi lögum er bráðabirgðaákvæði sem kveður á um að lögin skuli sæta endurskoðun með tilliti til reynslu af þeim breytingum sem í þeim fólust. Sú endurskoðun skyldi hefjast eigi síðar en 1. janúar 2025. Það er mitt mat að síðan lögin tóku gildi hafi verulegir ágallar komið fram. Traust almennings til leigubifreiðaþjónustunnar hefur minnkað og ýmislegt færst til verri vegar. Frá gildistöku laganna hafa birst fréttir af alvarlegum atvikum, þar á meðal ofbeldi, áreitni og svindli. Afnám gjaldmælaskyldu þegar samið er um verð fyrir fram hefur skapað svigrúm fyrir ósanngjarna verðlagningu, sérstaklega gagnvart ferðamönnum. Þá hefur skortur á eftirliti og möguleiki leigubifreiðastjóra til að starfa án tengsla við stöð skapað augljósa öryggisáhættu fyrir farþega. Þannig hefur ríkt óvissuástand og glundroði á markaðnum frá gildistöku laganna. Leigubifreiðastjórar hafa sjálfir lýst yfir áhyggjum af versnandi starfsumhverfi og afkomu, sem aftur hefur skapað jarðveg fyrir versnandi viðskiptahætti. Ég taldi því nauðsynlegt að bregðast við ástandinu á leigubifreiðamarkaði strax á vorþingi.
Með frumvarpinu er lagt til að heimild rekstrarleyfishafa til að reka leigubifreiðastöð án sérstaks starfsleyfis fyrir rekstur slíkrar stöðvar verði felld brott. Stöðvaskylda verði þar með samræmd og gildi án undantekninga fyrir alla leyfishafa. Breytingin mun hafa bein áhrif á tæplega 100 af alls 960 rekstrarleyfishöfum, en þessir aðilar sem njóta undanþágu samkvæmt 2. málsl. 1. mgr. 7. gr. gildandi laga, halda þó leyfi sínu þar til það rennur út. Þeir þurfa hins vegar að uppfylla allar þær kröfur sem frumvarpið gerir til leigubifreiðastöðva.
Í einföldu máli þýðir það að leigubifreiðastjórar þurfa að vera skráðir hjá viðurkenndri leigubifreiðastöð sem veitir starfseminni aðhald. Þetta er nauðsynlegt til að tryggja öryggi farþega, eðlilega verðlagningu og skilvirkt eftirlit með þjónustunni. Hver sem er getur þó stofnað leigubifreiðastöð svo lengi sem viðkomandi uppfyllir skýrar kröfur um eftirlit og upplýsingasöfnun.
Rekstrarleyfishöfum er gert að tryggja skráningu greiðslna og skila nauðsynlegum upplýsingum til þeirrar leigubifreiðastöðvar sem þeir tilheyra svo að hún hafi yfir þeim að ráða og geti sinnt eigin skyldum. Þær upplýsingar varða til að mynda ökumann leigubifreiðar, leigubifreiðina sjálfa, gjaldmæla og greiðslur.
Leigubifreiðastöð skal jafnóðum safna og geyma upplýsingar úr svokallaðri rafrænni skrá á stafrænu formi. Um er að ræða upplýsingar um upphafs- og endastöð hverrar seldrar ferðar og staðsetningu bifreiðarinnar á meðan ferð stendur yfir. Skylda til varðveislu gagna úr rafrænu skránni í 60 daga er færð alfarið frá rekstrarleyfishafa yfir til leigubifreiðastöðvarinnar. Að auki er kveðið á um árlega úttekt stafrænna kerfa leigubifreiðastöðva svo að öryggi og gæði gagna séu tryggð.
Loks er leigubifreiðastöð gert að bjóða farveg fyrir kvartanir neytenda er varða verð og gæði þjónustu. Leyfishöfum verður um leið gert að upplýsa og leiðbeina neytendum um þann möguleika sem og möguleika til að kvarta til annarra viðeigandi stjórnvalda. Leigubifreiðastöð ber einnig að tilkynna viðeigandi stjórnvöldum verði hún vör við eða hafi hún grun um að leyfishafi fari ekki að lögum. Skyldur stöðvar geta í einfaldri mynd falist í rafrænu eftirliti og getur til dæmis verið í formi smáforrits eða apps. Því er ekki verið að hindra, draga úr aðgengi eða samkeppnishæfni fyrirtækja eins og Uber, Bolt eða annarra sambærilegra fyrirtækja. Þetta er mikilvægt atriði.
Leigubifreiðaakstur er ómissandi sólarhringsþjónusta fyrir almenning sem tengir saman aðra samgöngumáta og kemur að gagni þegar aðrar samgöngur bresta. Þessi þjónusta er ekki síst mikilvæg fyrir viðkvæma hópa, svo sem fatlaða, aldraða og ferðamenn, sem hafa ekki aðgang að öðrum ferðamáta. Með framangreindu eru stigin skref í þá átt að tryggja betur öryggi þjónustunnar þar sem leigubifreiðastöðvar veita aðhald sem og stuðla að því að réttmætir viðskiptahættir séu stundaðir í greininni. Þá munu breytingarnar styrkja rétt farþega og auðvelda lögreglu rannsókn mála. Um er að ræða fyrsta áfanga í þeirri vegferð að endurheimta traust almennings til leigubifreiðaþjónustu á Íslandi, traust sem virðist hafa hrunið frá því að gildandi lög tóku gildi eða á síðustu tveimur og hálfu ári.. Áfram verður unnið að breytingum á lagaumhverfi greinarinnar með það að markmiði.
Virðulegi forseti. Ég hef nú farið yfir helstu efnisatriði frumvarpsins og vísa að öðru leyti til frumvarpsins sjálfs og greinargerðar sem fylgir því. Má þá benda á að markmið þessa frumvarps er alveg skýrt, þ.e. að auka öryggi farþega. Við förum eftir meðalhófsreglunni og beitum vægasta úrræði til að ná því markmiði og tryggjum þannig að við erum ekki að ganga á svig við EES-samninginn með nokkrum hætti. Þetta kemur ekki í veg fyrir það að erlendir aðilar geti stofnað hér stöð.
Það er mitt mat að samþykkt frumvarpsins komi til með að stuðla að auknu öryggi í leigubifreiðaþjónustu og bættu starfsumhverfi leigubifreiðastjóra. Ég legg til að eftir 1. umræðu verði málinu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og til 2. umræðu.